Húsvískir STEM krakkar björguðu teistu sem hafði flækst í neti

Sumarnámskeið STEM Húsavík, Náttúruvísindakrakkar, fór fram í vikunni, en þemað þetta árið var fuglalíf. Á námskeiðinu tóku börn þátt í fjölbreyttum verkefnum þar sem náttúra, vísindaleg hugsun og skapandi skráning voru í forgrunni. Leiðbeinendur á námskeiðinu voru þau Huld Hafliðadóttir, stofnandi og forstöðukona STEM Húsavík, og Elena Martinez, sem er Montessori kennari.

Í ár var bækistöð námskeiðsins við Kaldbak, en unnið var út frá Kaldbakstjörnum og nærumhverfinu þar í kring. Þar gafst börnunum tækifæri til að fylgjast með fuglum, hlusta eftir fuglasöng, skoða ummerki í náttúrunni, skrá athuganir, teikna og velta fyrir sér hvernig ólíkar tegundir lifa og tengjast umhverfi sínu.

Á námskeiðinu var meðal annars fjallað um vistgerðir, vistkerfi, fuglategundir, einkenni fugla, búsvæði, fæðu, varp, hegðun og flug fugla. Börnin unnu með spurningar, athuganir og skráningu og lærðu að skoða náttúruna með augum ungra vísindamanna.

Hluti námskeiðsins snerist einnig um að tengja nám við raunverulegt starf og þekkingu í nærumhverfinu. Börnin heimsóttu fuglafræðing hjá Náttúrustofu Norðausturlands, þar sem þau fengu að fræðast meira um fugla, spyrja spurninga og sjá hvernig vísindaleg þekking verður til í raunverulegu samhengi. Þá heimsóttu þau skapandi rýmið Fum og Fok, þar sem þau unnu verkefni um fuglana sína.

Námskeiðið endaði svo á sannkölluðu ævintýri fyrir hluta hópsins. Nokkur barnanna urðu eftir í fjörunni fyrir neðan Kaldbak með Elenu kennara þegar þau komu auga á teistu sem hafði flækst í neti í flæðarmálinu. Hópurinn náði að finna leið til að losa fuglinn og fylgdist með honum komast aftur út í náttúruna. Skömmu síðar flaug stór og tignarlegur fálki yfir svæðið, eins og náttúran sjálf hefði sett punktinn yfir i-ið eftir fjóra daga af athugunum, spurningum og uppgötvunum.

„Námskeiðið sýnir vel hvað við eigum mikinn mannauð, þekkingu og tækifæri í nærumhverfinu okkar. Þegar við tengjum saman náttúru, skapandi rými, sérfræðiþekkingu og fólk sem hefur áhuga á að skapa góð námstækifæri fyrir börn, verður til lifandi STEM námsvistkerfi. Mig langar sérstaklega að nefna hversu heppin við erum að hafa Elenu hér í samfélaginu, en hún hefur einstakt lag á að vinna með börnum, náttúru og sköpun. Elena og Benni opnuðu líka bakgarðinn sinn í Kaldbak fyrir okkur sem bækistöð námskeiðsins, sem gerði okkur kleift að vinna beint út frá skóginum, tjörnunum og fuglalífinu í kring. Framlag þeirra, og sérstaklega Elenu sem leiðbeinanda, skiptir miklu máli í því að gera námskeiðið bæði lifandi, faglegt og eftirminnilegt,“ segir Huld Hafliðadóttir, stofnandi og forstöðukona STEM Húsavík.