Í hjarta Húsavíkur, meðfram Búðará, er svæði sem er miklu meira en samansafn trjáa, stíga, bekkja og blómabeða. Skrúðgarðurinn er einn af þeim stöðum sem móta ásýnd bæjarins, varðveita sögu hans og veita íbúum skjól frá amstri dagsins. Hann er jafnframt lifandi dæmi um hversu miklu má áorka þegar bæjarbúar, félagasamtök og fagfólk vinna saman að sameiginlegu markmiði.
Sem garðyrkjufræðingur horfi ég á Skrúðgarðinn öðrum augum en margir gestir hans. Ég sé vissulega fallegan og gróskumikinn almenningsgarð, en ég sé líka áratuga uppbyggingu, langtímahugsun og ótal vinnustundir sem hafa skilað sér í þeim gróðri og þeirri umgjörð sem við njótum í dag.
Garður sem varð til fyrir samstöðu
Hugmyndir um almenningsgarð við Búðará ná langt aftur. Þegar Húsavík varð skipulagsskyld árið 1931 var þegar gert ráð fyrir almenningsgarði á þessum stað. Það liðu þó áratugir þar til hugmyndin varð að veruleika.
Kvenfélag Húsavíkur átti stærstan þátt í að koma verkefninu af stað. Í kringum árið 1970 hóf félagið markvisst að safna fé til garðgerðarinnar. Meðal annars rann ágóði af sælgætis- og gosdrykkjasölu á þjóðhátíðardaginn til væntanlegs skrúðgarðs.
Árið 1974 var landslagsarkitektinn Reynir Vilhjálmsson fenginn til að hanna garðinn. Framkvæmdir hófust síðan 16. júní 1975 þegar tólf konur úr Kvenfélagi Húsavíkur, félagar úr Rótarýklúbbi Húsavíkur og fulltrúi nýstofnaðs Garðyrkjufélags Húsavíkur tóku höndum saman við gróðursetningu.
Meðal fyrstu plantnanna voru lerki, reyniviður, viðja, birki og ösp. Plönturnar komu meðal annars frá Hallormsstað og Vaglaskógi. Þessi gróður, sem var smár og viðkvæmur í upphafi, hefur nú vaxið og þroskast í meira en hálfa öld og myndar þá sterku umgjörð sem einkennir garðinn í dag.
Þetta er mikilvægt að hafa í huga. Stór og gróskumikil tré verða ekki til á einu kjörtímabili. Garðrækt krefst þolinmæði, framsýni og vilja til að vinna að verðmætum sem komandi kynslóðir njóta.
Lifandi arfleifð
Skrúðgarðurinn er um margt minnisvarði um samfélagsanda. Árið 1979 var dreifibréf sent til allra íbúa Húsavíkur þar sem óskað var eftir þátttöku þeirra í uppbyggingunni. Bæjarbúar tóku vel í erindið og lögðu hönd á plóg við gróðursetningu, stígagerð og önnur verk sem urðu til þess að garðurinn tók smám saman á sig þá mynd sem við þekkjum í dag.
Á næstu árum hélt garðurinn áfram að þróast. Hlaðinn bolli var gerður úr hraungrjóti, göngustígar lagðir um svæðið, gamlar tóftir endurgerðar og bekkjum komið fyrir. Lionsklúbburinn gaf garðinum bekki og smám saman varð svæðið einn vinsælasti viðkomustaður bæjarbúa og ferðamanna.
Í þessu felst kannski einn helsti styrkur garðsins. Hann var ekki reistur sem einangrað framkvæmda- eða átaksverkefni heldur varð hann til smám saman með þátttöku samfélagsins. Þess vegna er hann ekki aðeins eign sveitarfélagsins heldur, í ákveðnum skilningi, sameiginleg eign allra Húsvíkinga.
Meira en sumargarður
Góður almenningsgarður þarf að þjóna fólki, ekki aðeins líta vel út. Skrúðgarðurinn gerir hvort tveggja.
Á sumrin njóta gestir blómabeða, trjágróðurs, fuglalífs og stíflunnar. Listaverkið Dans, eftir Sigrúnu Guðmundsdóttur, gjöf Kvenfélags Húsavíkur, setur sterkan svip á umhverfið við stífluna. Bekkir og dvalarsvæði gera fólki kleift að staldra við, njóta kyrrðarinnar eða eiga samverustund með öðrum.
Garðurinn er þó ekki aðeins nýttur yfir sumarið. Skjól trjánna og gott stígakerfi gera hann einnig að verðmætu útivistarsvæði yfir vetrarmánuðina. Þar er stunduð skíðaganga, göngustígarnir eru mikið nýttir allt árið og hjólreiðafólk nýtir svæðið þar sem hjólabraut Húsavíkur endar rétt austan við garðinn. Garðurinn er jafnframt miðpunktur gönguleiða bæjarins og tengir saman leiðir að Botnsvatni, skóginum og Ævintýrabrautinni.
Garðurinn gegnir því bæði félagslegu og heilsufarslegu hlutverki. Græn svæði veita fólki stað til hreyfingar, hvíldar og samveru. Þau draga úr streitu, auka vellíðan og styrkja tengsl fólks við nærumhverfi sitt.
Slík verðmæti verða ekki alltaf mæld í krónum, en þau skipta miklu máli fyrir lífsgæði íbúa.
Miðpunktur græns ás
Skrúðgarðurinn er hluti af stærra samhengi. Hann tengist grænum ás sem liggur frá efri hluta Húsavíkur og upp að Botnsvatni, einu vinsælasta útivistarsvæði bæjarins.
Fjölmargar gönguleiðir byrja eða enda í garðinum. Þarna mætast útivist, náttúra og byggð á einstakan hátt. En þrátt fyrir það er tengingin við miðbæinn og hafnarsvæðið enn ekki eins sterk og hún gæti verið.
Hafnarsvæðið hefur á síðustu árum orðið eitt helsta aðdráttarafl Húsavíkur fyrir ferðamenn. Þar er mikil þjónusta, afþreying og mannlíf. Það er því eðlilegt að skapa sterkari tengsl milli hafnarinnar og Skrúðgarðsins þannig að gestir bæjarins upplifi þessa tvo mikilvægu staði sem eina samfellda heild.
Tækifæri til að tengja bæinn saman
Vestan Skrúðgarðsins er Vegamótatorg, eitt helsta dvalarsvæði Húsavíkur. Þar eru bekkir, jólatré bæjarins, útitafl og fallegt umhverfi. Neðan þess tekur Búðarárgil við og við útrás árinnar hefur verið komið fyrir vistlegu dvalarsvæði þar sem dínamórinn úr gömlu Búðarárvirkjuninni minnir á merkilegan þátt í sögu bæjarins.
Mikilvægur áfangi hefur þegar náðst með byggingu stiga niður að Búðarárstíflu. Nú þarf hins vegar að ljúka þeirri framkvæmd með því að tengja stigann betur inn í núverandi göngustígakerfi. Þar þarf meðal annars að endurskoða gangbrautina yfir Stangarbakka, gera niðurtektir og leggja stíga sem leiða gangandi vegfarendur á öruggan og eðlilegan hátt niður að stiganum.
Samhliða þessu tel ég eðlilegt að horfa til þess að Vegamótatorg verði hluti af Skrúðgarðinum í skipulagslegum skilningi. Með slíkri heildarsýn mætti skapa samfellda græna gönguleið frá Botnsvatni, í gegnum Skrúðgarðinn, yfir Vegamótatorg og niður að sjó.
Slík tenging myndi ekki aðeins nýtast íbúum heldur einnig fjölmörgum ferðamönnum sem heimsækja Húsavík ár hvert.
Nú er garðurinn orðinn 51 árs
Skrúðgarðurinn á Húsavík er nú 51 árs. Það þýðir að stærstur hluti trjágróðursins er kominn á þann aldur að huga þarf markvisst að framtíð hans.
Tré eru lifandi mannvirki. Þau eldast, verða fyrir veðri og vindum og sum þeirra ná háum aldri á meðan önnur þarfnast endurnýjunar. Þess vegna þarf reglulega að meta heilbrigði þeirra og skipuleggja endurnýjun gróðurs áður en stór skörð myndast.
Viðhald almenningsgarðs snýst því ekki aðeins um slátt, snyrtingu og sumarblóm. Það snýst um að hugsa áratugi fram í tímann.
Það er einmitt þessi langtímahugsun sem gerði það að verkum að við njótum í dag skjóls undir trjám sem gróðursett voru árið 1975.
Verndum það sem aðrir byggðu upp
Skrúðgarðurinn á Húsavík varð til vegna þess að fólk hafði trú á framtíðinni. Konur í Kvenfélagi Húsavíkur, félagar í Rótarýklúbbi Húsavíkur, garðyrkjufólk og almennir bæjarbúar unnu saman að verkefni sem þau vissu að myndi ekki skila fullum árangri fyrr en mörgum árum síðar.
Við njótum nú ávaxta þeirrar vinnu.
Það leggur okkur ákveðna skyldu á herðar. Við eigum ekki aðeins að varðveita garðinn í núverandi mynd heldur halda áfram að þróa hann af virðingu fyrir sögu hans, gróðri og þeirri hönnunarhugsun sem Reynir Vilhjálmsson lagði upp með.
Skrúðgarðurinn á ekki að vera afmarkaður grænn blettur í bænum. Hann á að vera hjarta græns samgöngunets sem tengir saman náttúru, byggð, miðbæ og hafnarsvæði.
Þar liggur að mínu mati eitt stærsta tækifæri Húsavíkur á komandi árum.
Skrúðgarðurinn sýnir okkur hvað verður til þegar samfélag plantar trjám í þeirri vissu að aðrir muni einn daginn njóta skjóls þeirra. Nú er komið að okkar kynslóð að ákveða hvað við ætlum að skilja eftir fyrir þá sem á eftir okkur koma.
Ég vona að við veljum að halda áfram þeirri vegferð sem hófst sumarið 1975. Hún hefur þegar gert Húsavík að betri bæ. Nú er verkefnið að gera hana enn betri.

