Hvar er besta hvalaskoðun landsins? Húsavík fær afgerandi meðmæli ferðalanga og fyrirtækja

Miklar umræður hafa skapast í einum fjölmennasta Facebook-hópi ferðafólks um Ísland þar sem Alissa Menconi spurði einfaldlega: „Hvar er besta hvalaskoðun landsins: í Reykjavík, á Húsavík eða á Akureyri?“ Svörin létu ekki á sér standa og var Húsavík ítrekað nefnd sem besti kosturinn fyrir þau sem vilja upplifa hvali í sínu náttúrulega umhverfi, ekki síst ef markmiðið er að sjá hnúfubaka stökkva upp úr sjónum.

Einn svarenda, Erwin van der Werve, benti á að hvalaskoðun frá Húsavík notaðist við hefðbundna eikarbáta og útsýnið væri einstakt. Hann sagði Akureyri vissulega bjóða upp á rólegri siglingu djúpt inni í firðinum, en Húsavík hefði meira aðdráttarafl fyrir þá sem leituðu að „ekta“ upplifun.

Annar ferðalangur, Rob Gorden, sagði að hann hefði farið með hraðbát frá Húsavík þar sem hraðinn gerði áhöfninni kleift að fylgja hvölunum á milli staða. Í þeirri ferð sá hann bæði steypireyð og hnúfubaka og sagði einn steypireyð hafa komið svo nærri bátnum að hann hefði nánast getað snert hann.

Það vakti einnig athygli að Guide to Iceland, stærsta ferðavefsíða landsins, tók þátt í umræðunni og svaraði spurningunni afdráttarlaust:

„Húsavík er klárlega besti kosturinn. Bærinn er almennt talinn hvalaskoðunarhöfuðborg Íslands, býður upp á hæstu líkur á hvalasýnum og besta möguleikann á að sjá virka hnúfubaka stökkva upp úr sjónum,“ segja fulltrúar Guide to Iceland í ummælum í þræðinum.