Umræða um loðdýrarækt á Íslandi hefur verið áberandi undanfarna daga eftir að þúsundum minka var sleppt úr Dalsbúi í Mosfellsbæ í vikunni, síðasta starfandi loðdýrabúi landsins. Málið hefur vakið upp á ný umræðu um framtíð greinarinnar hér á landi og hvort banna eigi loðdýrarækt alfarið.
Loðdýrarækt á sér langa sögu í Þingeyjarsýslum. Á uppgangsárum greinarinnar voru fjölmörg loðdýrabú starfandi í nágrenni Húsavíkur og árið 1987 þjónustaði fóðurstöð Kaupfélags Þingeyinga til að mynda tíu refabú og tvö minkabú og fjölgaði þeim nokkuð árin á eftir. Þingeyskir bændur seldu lengst af skinn sín á skinnamarkaðnum í Kaupmannahöfn, þar sem verð á loðfeldum sveiflaðist mikið frá ári til árs. Greinin hefur hins vegar dregist hratt saman á síðustu árum og eftir að fimm loðdýrabú á Suðurlandi hættu rekstri í nóvember 2025 er aðeins eitt bú starfandi á Íslandi.
Sigurborg Ósk Haraldsdóttir, landslagsarkitekt og sérfræðingur í umhverfis- og loftslagsmálum, hefur bent á að Norðurþing sé líklega fyrsta sveitarfélag landsins sem bannar loðdýrarækt með skýrum hætti í aðalskipulagi sínu. Í greinargerð með Aðalskipulagi Norðurþings til ársins 2045 kemur fram að loðdýrarækt sé óheimil innan marka sveitarfélagsins.
Í færslu á samfélagsmiðlum skrifar Sigurborg: „Það eina rétta í stöðunni er að banna þann grimmilega iðnað sem loðdýrarækt er. Norðurþing hefur nú (líklega fyrst allra sveitarfélaga) gert loðdýrarækt óheimila í sínu nýja aðalskipulagi. Nú þurfa fleiri að fylgja í kjölfarið. Reykjavíkurborg er þegar komin af stað með að skoða breytingar á landnotkun í sínu aðalskipulagi, sem gerir ráð fyrir þessum möguleika. Sýnum í verki að við erum manneskjur með samkennd og samfélag með sterkt siðferði. Hættum þessu ógeði og bönnum loðdýrarækt.“

