Frímann Sveinsson tónlistamaður og listmálari var útnefndur Listamaður Norðurþings 2026 við hátíðlega athöfn á opnunarhátíð Mærudaga sem fóru fram nú um helgina. Með útnefningunni er heiðrað áralangt og fjölbreytt framlag hans til lista-, menningar- og samfélagslífs í sveitarfélaginu.
„Þetta var mögnuð tilfinning og æðisleg stund. Ég hef fengið miklar hamingjuóskir,“ sagði Frímann í samtali við Húsavík.com. Hann stóð fyrir Mærudagsballi í Hvammi á föstudagskvöld og þangað mættu bæði forseti Íslands og fulltrúar sveitarstjórnar og skemmtu sér með heimilisfólki. „Þetta var mikil gleðistund fyrir íbúa í Hvammi.“
Frímann segir að útnefningin verði hvatning til áframhaldandi sköpunar. „Ég ætla að halda mínu striki, mála mikið og spila og syngja. Ég mun fara um sveitarfélagið allt, bæði hvað varðar tónlist og myndlist. Jafnvel ætla ég að sækja mér fleiri námskeið í vatnslitamálun og ég ætla að halda áfram að þróa þessa tækni. Svo stefni ég að því að halda tónleika með vorinu.“
Í rökstuðningi Norðurþings kemur fram að með útnefningunni sé Frímanni þakkað fyrir óeigingjarnt framlag til lista og samfélagsins. Með myndlist sinni, tónlist og samfélagsþátttöku hafi hann auðgað mannlíf í Norðurþingi og veitt fjölmörgum gleði og innblástur.

