Í Bragganum í Öxarfirði, milli Ásbyrgis og Kópaskers, er listasýningin „Á tánum“ eftir listakonu Braggans Ingunni St. Svarvarsdóttur, eða Yst, sem valin var listamaður Norðurþings 2025. Sýningin er opin í tilefni Sólstöðuhátíðarinnar á Kópaskeri sem haldin er þessa viku.
Yst segir sýninguna fjalla um þrennskonar breytingaferli eða ummyndun; loftlagsvá og umhverfisbreytingarferlið, breytinguna frá feðraveldi fortíðar og í þriðja lagi umbreytingu sjálfsins.
Miklar öfgar hafa verið í loftlagsmálum og miklar umhverfisbreytingarnar sem haft hafa áhrif á líf og umhverfi þessa áratugina. Yst segist sjá breytingar á fuglalífi og segir: „við sjáum og finnum fyrir mikilli fækkun í kríustofninum hér í kringum okkur eftir öfga í veðri, fæðuskort og ungamissi undangengin 3 ár og svo hefur refurinn átt sinn þátt í því. Það eru líka miklar breytingar hér í fjörunni, hvernig landið rís hér og áin breytir um farveg fyrir áhrif sterkra vestanvinda“.
Breytingu á feðraveldi fortíðar segir Yst að hún sé glöð að fá að upplifa í breytingaferli í lífinu en eins og hún segir: „ég upplifði á eigin skinni sem unglingur mikið launamisrétti og jafnræði manneskjunnar óháð kyni þarf ætið að halda á lofti!“ Yst fagnar því að hafa fengið taka þátt í Rauðsokkuhreyfingunni af lífi og sál og sjá árangurinn í samfélaginu nú. „Sem dæmi þá vorum við þrjár konur, á sínum tíma, sem voru í stjórn sveitafélaga og mættum á ráðstefnu íslenskra sveitafélaga á Akureyrir fyrir um það bil 40 árum, nú er öldin önnur sem betur fer.“
Yst segist svo fjalla um breytingu á sjálfri sér út frá samanburðarfræði sjálfsins eða egósins. „Þetta umbreytingarferli mitt hefur tekið tíma og á enn langt í land og það hefur hjálpað mér að vera hér í einverunni, lestur, námskeið og iðkun. Ég er þess fullviss að lífið okkar hér á jörðinni á sér æðri mátt en okkur mannverurnar og að takmark lífsins og stefna er aðeins eitt: kærleikurinn og ljósið“.
Sýningin „Á tánum“ í Bragganum er opin í tengslum við Sólstöðuhátíðina frá kl. 11:00-16:00 og frítt inn þessa viku.

