Dagana 14.-21. júní fer fram Sólstöðuhátíð á Kópaskeri en þessi bæjarhátíð er orðin góð og skemmtileg hefð í samfélaginu. Boðið verður uppá fjölbreytta dagskrá þessa daga og má nefna að sjálfur Mugison hefur hátíðina með Náttúrutónleikum við Útskála á Kópaskeri en hann er nú að ferðast um landið að gleðja landann með tengingu tónlistar og náttúru. Þetta eru útitónleika á fallegum stað en eins og hann segir sjálfur: „Eitt fallegasta útsýni landsins – beint út á djúpið. Þegar ég á leið um fer ég alltaf þanngað og gapi út í eilífðina og hugsa „lífið“,ja hérna hér“. Hann hvetur gesti að hafa með sér teppi og útistóla, kakó og kleinur og lofar kósýheitum og einstakri stund. Miðasala er á Tix.is
Ýmislegt verður svo um að vera svo sem Sólstöðutónleikar Flyglvina í Skólahúsinu á Kópaskeri, Björgunarsveitin Pólstjarnan frá Raufarhöfn með útigrill, Kór Snartarstaðakirkju verður með tónleika, Hljómsveitin Snarrót stígur á stokk, Sólstöðuganga Ferðafélags Norðurslóða, Íþróttaálfurinn og útidagskrá fyrir börn, prjónaganga, kaffisala og margt fleira.
Í ár eru 50 ár síðan stór jarðskjálfti reið yfir svæðið þann 13.janúar 1976 og er mörgum ferskur í minni en hann hefur ávallt verið kallaður Kópaskersskjálftinn. Laugardaginn 20. júní verður svokölluð jarðskjálftahátíð sem hefst með skjálftamessu í Snartarstaðarkirkju þar sem t.d. þrír einstaklingar munu rifja upp þennan dag fyrir 50 árum.
Sólstöðuhátíðinn á Kópaskeri hefur metnaðarfulla dagskrá sem hægt að finna í heild sinni á Facebooksíðu hátíðarinnar: Sólstöðuhátíðin á Kópaskeri 2026 og á Upplifðu Norðurland.

