Guðmundur í Brim og Ratcliffe tryggja rekstrargrundvöll Fjallalambs

Guðmundur Kristjánsson, kenndur við Brim, og breski fjárfestirinn Jim Ratcliffe hafa fjárfest í Fjallalambi á Kópaskeri og tryggt rekstrargrundvöll fyrirtækisins. Báðir eiga þeir jarðir á Norðausturlandi og hefur hvor um sig eignast 20% hlut í félaginu. Nánar er fjallað um málið í Bændablaðinu í vikunni.

Fjallalamb rekur sláturhús og kjötvinnslu á Kópaskeri og slátrar um 23 þúsund fjár á hverju hausti. Fyrirtækið hefur glímt við rekstrarerfiðleika en Víkingur Björnsson framkvæmdastjóri segir nýja fjárfesta styrkja stöðu þess verulega.

Víkingur segir fjárfestana ekki hafa ráðandi hlut og að áfram verði haldið með núverandi stjórnendur við stjórnvölinn. Með tryggari rekstrargrundvelli sé nú hægt að marka framtíðarstefnu félagsins, en hann segir starfsemi Fjallalambs skipta miklu fyrir atvinnulíf og samfélagið á Kópaskeri og Norðausturlandi.