Ákall til kjörinna fulltrúa: Eru ferðamennirnir dýrmætari en börnin okkar?

Í kosningabaráttunni síðastliðið vor voru málefni barna og fjölskyldna áberandi. Nú er eðlilegt að kalla eftir því að sú áhersla sjáist einnig í ákvörðunum, forgangsröðun og ekki síst framkvæmdum sveitarfélagsins.

Í febrúar 2025 sendu Hagsmunasamtök Barna á Húsavík og Foreldrafélag Borgarhólsskóla formlegt erindi til Fjölskylduráðs Norðurþings vegna umferðaröryggis barna. Þar var kallað eftir aðgerðum til að tryggja öryggi barna, meðal annars á gönguleiðinni milli grunnskólans og sundlaugarinnar, og lagt til að unnin yrði stefna og aðgerðaráætlun um umferðaröryggi barna á Húsavík.

Í erindinu var sérstaklega bent á að öryggi á daglegum gönguleiðum barna frá skólanum væri víða ábótavant, t.a.m. á leið þeirra á bókasafnið, í sundlaugina og á fótboltavöllinn, þar sem engar gangbrautir eru til að þvera umferðargötur á þeirri leið.

Ábendingum um öryggi barna var vísað til Skipulags- og framkvæmdaráðs, sem jafnframt samþykkti samhljóða að hefja vinnu við umferðaröryggisáætlun fyrir sveitarfélagið. Sérstaklega var tekið fram að gönguleið barna frá grunnskóla að sundlaug þyrfti að vera aðgengileg og vel merkt.

Tæpu ári síðar, eða í janúar 2026, lá fyrir kostnaðarmat vegna vinnu við umferðaröryggisætlunina og var málinu þá vísað til fjárhagsáætlunar 2027.
Málið um umferðaröryggi barna virðist því sitja fast í kerfinu.

Þess má geta að þörfin fyrir títtnefnda umferðaröryggisáætlun er ekki ný af nálinni, en hana má finna í fundargerðum sveitarfélagsins allt aftur til ársins 2015, ásamt ákalli um aukið öryggi skólabarna á leið til sundkennslu.

Á sama tíma og beðið er eftir nýrri umferðaröryggisáætlun sveitarfélagsins hafa nýjar gangbrautir og gönguleiðir sprottið upp á hafnarsvæðinu, þar sem lögð hefur verið áhersla á að ferðamenn geti gengið öruggir til og frá skemmtiferðaskipum.

Það er sjálfsagt og sannarlega skylda okkar að huga vel að öryggi þeirra sem heimsækja bæinn. En það er erfitt að horfa fram hjá því að á meðan hægt er að koma öryggisaðgerðum fyrir ferðamenn til framkvæmda, bíða úrbætur á daglegum gönguleiðum barnanna okkar enn í kerfinu.

Hér með skora ég á kjörna fulltrúa Norðurþings að bregðast við án frekari tafa og tryggja lágmarksöryggi skólabarna á þeirra daglegu gönguleiðum um bæinn.

Huld Hafliðadóttir,
Foreldri og áhugamanneskja um barnvænt samfélag