Aðalsteinn Jóhann Skarphéðinsson húsasmíðameistari fæddist í Skálabrekku á Húsavík 26. janúar 1944. Hann lést á Skógarbrekku á Húsavík 7. ágúst 2026.
Foreldrar hans voru Skarphéðinn Jónasson bílstjóri, f. 11.1.1917, d. 27.12. 1990, og Hólmfríður Jónína Aðalsteinsdóttir húsmóðir, f. 15.7. 1916, d. 13.1. 1990. Systkini Aðalsteins voru samtals tólf. Af þeim eru sjö eftirlifandi.
Eftirlifandi eiginkona Aðalsteins er Ingiríður Þórisdóttir, f. 4.8. 1945, húsmóðir. Foreldrar hennar voru Þórir Hólm Friðgeirsson, aðalgjaldkeri Kaupfélags Þingeyinga og bókavörður, f. 14.9. 1901, d. 23.9. 1996, og Arnfríður Karlsdóttir húsmóðir, f. 26.6. 1905, d. 7.6. 1976. Börn Aðalsteins og Ingiríðar eru: 1) Arnfríður, f. 1.6. 1963, náms- og starfsráðgjafi, búsett í Eyjafjarðarsveit. Eiginmaður hennar er Jón Ingi Guðmundsson, f. 14.7. 1963, mjólkurfræðingur. Þau eiga samtals sex börn og 19 barnabörn. 2) Þórir, f. 5.8. 1964, viðskiptafræðingur, búsettur á Akureyri. Eiginkona hans er Jóhanna Eydís Þórarinsdóttir, f. 25.12. 1964, framhaldsskólakennari. Þau eiga tvær dætur. 3) Hólmfríður Jónína, f. 2.10. 1975, hjúkrunarfræðingur, búsett í Noregi. Eiginmaður hennar er Sigþór Ari Sigþórsson, f. 29.8. 1968. Þau eiga samtals fjögur börn og tvö barnabörn.
Aðalsteinn gekk í grunnskóla og gagnfræðaskóla á Húsavík. Hann lærði húsasmíði í Trésmiðjunni Borg, lauk sveinsprófi 1966 og meistaraprófi 1969. Hann starfaði sem húsasmiðameistari alla sína starfsævi. Aðalsteinn starfaði hjá Trésmiðju Jóns og Haraldar frá 1966 til 1977 og Norðurvík hf. frá 1977 til 1991. Hann gerðist meðeigandi í Norðurvík árið 1984 og stjórnaði þar útiverkum. Hann stofnaði Trésmiðjuna Vík árið 1991 og AS Verk árið 2005.
Aðalsteinn fylgdist ávallt grannt með stjórnmálum og lét málefni samfélagsins sig varða. Hann var um tíma formaður Sveinafélags iðnaðarmanna og formaður Meistarafélags byggingamanna. Þá var hann fulltrúi í bæjarstjórn Húsavíkur 1998-2000 og gegndi að auki ýmsum nefndarstörfum fyrir bæjarfélagið. Hann var dyggur stuðningsmaður íþróttafélagsins Völsungs alla tíð. Hann lék knattspyrnu með meistaraflokki félagsins á yngri árum. Hann var formaður knattspyrnudeildar Völsungs 1963 og sat í stjórn knattspyrnudeildar 1971-1975. Meðan heilsan leyfði lét hann sig ekki vanta í brekkuna á heimaleikjum félagsins.
Útför Aðalsteins verður gerð frá Húsavíkurkirkju í dag, 17. ágúst 2026, klukkan 14.

