Norska varðskipið KV Hopen heimsótti Húsavík

Mánudaginn 10. ágúst heimsótti norska varðskipið KV Hopen Húsavík. Skipið hefur verið á siglingu um Norður-Atlantshafið undanfarið og æft m.a. með bandarísku og kanadísku strandgæslunni. Nú síðast kom skipið svo til Íslands í samstarfi við Landhelgisgæsluna. Tengslafulltrúi LHG um borð í Hopen hafði samband við slökkviliðið til að athuga hvort hluti áhafnar gæti mögulega fengið að komast í æfingasvæði okkar hér á Húsavík. Áhafnir varðskipa Landhelgisgæslunnar hafa áður fengið að æfa þar. Það var auðsótt mál og tókum við á móti tveimur hópum frá skipinu sem æfðu blinda reykköfun og björgun. Áhafnarmeðlimir voru alsælir með æfinguna og hrifnir af þessari aðstöðu sem við erum að byggja upp. Í þakkarskyni var slökkviliðsmönnum okkar boðið að koma í skoðunarferð um skipið og voru það nokkrir sem gátu þegið það boð.
KV Hopen var tekið í notkun 2024 og er það þriðja og síðasta í röðinni af svokölluðum Jan Mayen skipum sem öll eru nefnd eftir norskum heimskautaeyjum, Jan Mayen, Bjarnarey og Hopen. Skipið er 136 metra langt og 22 metra breitt. Það getur hýst allt að 100 manns í áhöfn. Skipið er sérhannað til siglinga um heimskautahöf og er sérstaklega styrkt til að sigla í ís. Það er útbúið þyrlupalli og þyrluskýli en meiningin er að bráðlega verði Seahawk björgunarþyrla með fast aðsetur í skipinu.