Jóhann Emil, Fannar Freyr og Stefán Leó safna fyrir Björgunarsveitina Garðar

Þessir ungu menn, Jóhann Emil, Fannar Freyr og Stefán Leó, eru með tombólu í dag í Kaupfélagshúsinu að Garðarsbraut 5. Þeir eru að safna peningum fyrir Björgunarsveitina Garðar og að sögn foreldris gengur það bara vel. Drengirnir reikna með að vera þarna aðeins áfram og um að gera að fara og styðja við gott málefni.