Askja: Landris hefur stöðvast og fyrstu vísbendingar um landsig

Landrisið sem hófst í Öskju árið 2021 hefur stöðvast. Fyrstu vísbendingar eru jafnframt um landsig á svæðinu. Frá þessu var greint á vef Veðurstofu Íslands í dag. Askja gaus síðast árið 1961.

Vettvangsvinnu í Öskju lauk í vikunni. Þar framkvæmdu vísindamenn Veðurstofunnar og Háskólans í Gautaborg mælingar á aflögun og gasi. Aflögunarmælingarnar sýndu að landrisið er hætt, auk þess sem smávægilegt landsig mælist. Engar breytingar mældust á samsetningu gass í eystri hluta Öskju miðað við fyrri ár. Skjálftavirkni á svæðinu er lítil og í samræmi við þekkta bakgrunnsvirkni.

Niðurstöðurnar gefa því til kynna að atburðarásinni sem hófst árið 2021 sé lokið. Í ljósi þess er viðvörunarstig eldstöðvarinnar fært aftur á stig 0. Það táknar eðlilegt bakgrunnsástand.

Á vef Veðurstofunnar segir að líkt og áður geti þó orðið gufusprengingar innan jarðhitasvæða í Öskju.