Minningargrein: Sveinn Freysson

Ég tók að mér að skrifa nokkur orð til minningar um Svein Freysson skólabróður okkar sem lést þ. 27. júlí s.l. Árgangur 1964 var fjölmennur og okkur féllu þrír „Sveinar“ í skaut. Þessi Sveinn varð „Svenni Freys“ og ég man vart eftir því að hafa heyrt hann kallaðan annað síðan í vorskólanum hjá Njáli Bjarna. Það var létt yfir Svenna í skóla bæði hafði hann létta lund og svo hafði hann um tíma þann sið að taka einhver ótrúleg fjaðrandi hopp og skopp fyrir öll horn og innum hurðagættir þar sem hann tók til skiptis snögg hægri og vinstri hopp og beygði lappir um 90°um hné svo lappirnar virtust liðamótalausar og handasveiflur fylgdu í takti. Þessi „fjaðrandi minning“ kom upp í huga mér þegar ég fór að hugsa um skólagönguna ásamt svo mörgu öðru. Svenni hafði eins og gefur að skilja ekki alltaf mikinn tíma til að læra. Það þurfti jú tíma í íþróttirnar, félagslífið og vinsældirnar en hann var líka klókur og kannski þess vegna gerðist hann sessunautur minn í Gagganum, þótti gott að taka „gjóara“ í stærðfræði og ekki síst ensku.

Snemma þótti gott að hafa Svenna með sér í liði, hann var mikill íþróttamaður og gilti einu hvort um var að ræða, fótbolta, blak eða handbolta. Hann var feykilega öflugur og má segja að hann hafi leitt okkur til sigurs í Íslandsmóti 3.flokks í blaki. Óvænt úrslit og Svenni þar fremstur meðal jafningja. Fyrir vikið var Svenni okkar vinsæll en það steig honum ekki til höfuðs. Hann var í Völsungsliðinu í fótbolta 1986 þegar liðið náði að vinna 2. deild og spilaði tvö tímabil í efstu deild.

Við sem skipuðum síðustu bekkjarmótsnefnd völdum Svenna sem formann nýrrar nefndar. Hann sótti öll bekkjarmótin og tók virkan þátt með tralli, gleði, upplestri og eftiminnilegum frásögnum. Mér segir svo hugur að þegar að næsta hittingi kemur munum við reglulega skála fyrir formanninum.

Við Svenni áttum góða stund saman um síðustu páska í góðum hópi. Það var létt yfir öllum og Svenni var ánægður með að æxli sem var orðið eins og epli væri nú meira eins og mandarína. Honum þótti meðferðin erfið en hún væri að virka. Talið barst að sjómennskuferlinum þar sem honum hafði tekist að fá stóran hluta flotans til að trúa á að hann dreymdi fátt annað en fyrir fiskeríi. Var sendur í koju þegar lítið fiskaðist til að dreyma nú fyrir því hvar ætti að kasta. Þar komu klókindin aftur fram að geta þarna unnið við að sofa! Við fórum yfir nokkra uppdiktaða drauma og ráðninguna sem fylgdi og hópurinn skemmti sér konunglega. Þannig vildi til að þetta var í síðasta skipti sem við skólabræður eyddum tíma saman og það var við hæfi að honum var eytt í glensi og gleði.

Við bekkjarsystkin Svenna sendum aðstandendum öllum hjartans samúðarkveðjur. Það var okkar lukka að Svenni Freys var jafnaldri okkar. Enginn í okkar stóra hópi tengdi nokkurn tíma neitt neikvætt við löng kynni okkar af honum. Hann var feiminn í eðli sínu en innan um sitt fólk var hann ótrúlegur sagnamaður og tók sjálfan sig ekki of hátíðlega þegar farið var með gamanmál. Minning hans lifir og gleður um ókomna tíð.

Fyrir hönd árgangs bekkjar 1964 frá Húsavík

Jón Hermann Óskarsson
Skólabróðir

Ljósmynd með grein: Hafþór Hreiðarsson