Ferðaþjónustan hefur á undanförnum árum orðið ein mikilvægasta stoð atvinnulífs á landsbyggðunum. Á meðan fiskvinnsla hefur dregist saman og opinber störf safnast í síauknum mæli á höfuðborgarsvæðið, og á meðan byggðastefna stjórnvalda hefur einkennst mera af orðum en gjörðum, þá hefur ferðaþjónustan byggt upp ný störf, ný fyrirtæki, kraftmiklar menningarstoðir og nýja framtíðarsýn fyrir byggðir um allt land.
Á Húsavík hefur mikið af þessari samtíðarsögu þjóðarinnar verið skrifað. Fiskiskip urðu að hvalaskoðunarbátum. Verksmiðjuhús urðu að gistihúsum og söfnum.
Sjóböðin sem opnuðu hér árið 2018 gjörbreyttu stöðu bæjarins sem áfangastaðar. Ný ástæða til að koma til Húsavíkur, eða einfaldlega dvelja lengur. Það er nákvæmlega svona sem öflug ferðaþjónusta virkar á landsbyggðinni. Eitt sterkt fyrirtæki býr til viðskipti fyrir mörg önnur. En stærsta breytingin sem við fundum með tilkomu Sjóbaðanna var sú að við fórum að sjá mikið af innlendu ferðafólki. Það opnaðist nýr markaður.
Nú ætlar ríkisstjórnin að hækka virðisaukaskatt á baðlón úr 11% í 24%. Ferðaþjónustan er stór atvinnugrein, en hún er líka einstaklega viðkvæm. Hún er háð gengi krónunnar, flugframboði, alþjóðlegri samkeppni, efnahagsástandi og stjórnmálum erlendis, náttúruhamförum, faröldrum og ótal öðrum þáttum sem íslensk fyrirtæki hafa ekkert vald yfir.
Þess vegna er sérstaklega alvarlegt þegar stærstu höggin koma að heiman.
Við þekkjum það þegar.
Fyrri ríkisstjórn hækkaði skatta og gjöld á skemmtiferðaskip með þeim afleiðingum að viðskiptin færðust annað. Nú sjáum við niðurstöðuna. Komum skemmtiferðaskipa til hafna Norðurþings hefur fækkað um nær 60% frá síðasta sumri. Svipuð þróun hefur átt sér stað í minni höfnum víða um land. Við fórum úr 65 skipakomum í fyrra, sem var okkar besta sumar, í 25 þetta sumarið. Mikilli vinnu við að markaðssetja höfnina var kastað á glæ.
Tekjur hurfu úr hafnarsjóðum, verslunum, söfnum, veitingastöðum, rútufyrirtækjum og afþreyingu. Og það versta er að jafnvel þegar stjórnvöld hafa nú áttað sig á mistökunum er ekki hægt að ýta á takka og fá viðskiptin aftur. Skemmtiferðaskip bóka ferðir sínar árafjöld fram í tímann. Skaðinn er þegar skeður fyrir næstu ár. Áratuga uppbygging getur þannig farið forgörðum á örskömmum tíma vegna þess að einhverjum datt í hug að hægt væri að auka tekjur ríkissjóðs með því einfaldlega að hækka gjöldin. En raunin er önnur og dæmin sýna það.
Nú virðist sami hugsunarhátturinn eiga að ráða gagnvart baðlónunum sem hafa verið byggð upp víða um land.
Setjum 24% inn í Excel-skjal. Margföldum. Tekjurnar aukast. Málið leyst. En hagkerfið virkar ekki þannig.
Vök á Austurlandi hafa þegar sagt að hækkunin geti þýtt að fyrirtækið verði rekið með tapi sjö mánuði ársins og að til skoðunar geti komið að loka í fjóra mánuði. Þar eru 16 heilsársstörf. Ætli 16 störf á Austurlandi skipti einhverju? Miðað við íbúafjölda Egilsstaða og Fellabæjar eru það ígildi tæpra 1400 starfa á höfuðborgarsvæðinu. Raunin er líkast til svipuð hjá okkur á Húsavík.
Sjóböðin eru ekki bara ferðamannastaður. Þau eru órjúfanlegur hluti af samfélaginu á Húsavík. Heimafólk fer þangað, starfsfólk býr hér, fyrirtækið kaupir þjónustu hér og gestir þess eyða peningum annars staðar í bænum. Það er þetta sem virðist sífellt gleymast þegar ferðaþjónustan er skoðuð sem skattstofn.
Á sama tíma hafa stjórnvöld ítrekað talað um dreifingu ferðamanna um landið, heilsársferðaþjónustu, byggðafestu og aukna verðmætasköpun.
Hvað gerist ef fyrirtæki á landsbyggðunum verða rekin með tapi stærri hluta ársins? Hvað gerist ef þau loka yfir veturinn?
Þá hættir fólk að fjárfesta.
Þá fækka heilsársstörfum.
Þá fækkar áfangastöðum.
Þá safnast ferðamennirnir enn frekar á þá staði þar sem stærðin og fjöldinn verja fyrirtækin betur fyrir áföllum.
Getum við sameinast um að læra af mistökunum sem voru gerð á síðustu tveimur árum gagnvart skemmtiferðaskipum og gera betur nú?
Ljósmyndir af greinarhöfundi: Sindri Swan
Ljósmynd af Húsavík: Visit Húsavík


