Byggðastefna er áhættustýring

Filmmaker Orly Orlyson

Íslensk stjórnvöld hafa árum og áratugum saman talað um öflugar byggðir, jafna búsetukosti og dreifingu opinberra starfa. Á pappírnum er stefna stjórnvalda skýr: Byggðaáætlun á að jafna tækifæri landsmanna til atvinnu og þjónustu og stuðla að sjálfbærri þróun byggðalaga um land allt. En tölurnar segja því miður allt aðra sögu. Samkvæmt nýjustu greiningu Byggðastofnunar eru um 70% allra stöðugilda á vegum ríkisins á höfuðborgarsvæðinu, þar sem um 64% þjóðarinnar býr. Og valdið sogar að og eflir þá byggð með hverju árinu og hverju nýja starfinu sem þar er komið á.

Tilfærsla valds gerist sjaldnast með einni stórri ákvörðun. Hún gerist hægt. Stofnanir eru sameinaðar, stjórnunarstöður færast, sérfræðiþekking safnast saman og ný störf verða til þar sem flest störfin eru fyrir. Á sama tíma eru samþykktar áætlanir um „stjórnsýslustöðvar ríkis í héraði“ og talað um að styrkja landsbyggðirnar. Það er ákveðin mótsögn í því að þurfa sérstaka byggðaáætlun til að vinna gegn þróun sem ríkið sjálft á stóran þátt í að skapa. Byggðastefna sem birtist fyrst og fremst í skýrslum, styrkjakerfum og góðum fyrirheitum, en ekki í staðsetningu valds, starfa og fjárfestinga, er byggðastefna í orði en ekki á borði. Síðustu vikur hefur þetta birst okkur einstaklega skýrt, aflagning sýslumanna, stórfelld sameining lögregluembætta auk hækkunar á öllum ferðakostnaði og sendingarkostnaði, hvort sem er á þjóðvegum eða í lofti.

Áhættustýring þjóðar

En þetta mál snýst ekki lengur aðeins um sanngirni milli landshluta. Þetta snýst líka um áhættustýringu þjóðar.

Jarðvísindastofnun Háskóla Íslands hefur bent á að meðalhlé milli eldgosatímabila á Reykjanesi sé um áttahundruð til þúsund ár. Fyrra virknitímabili lauk fyrir um 800 árum. Veðurstofan segir nú að engin gögn bendi til þess að goshrinunni við Sundhnúk sé að ljúka og að goshrinur á Reykjanesskaga geti staðið yfir í áratugi eða aldir með hléum.

Þetta þýðir ekki að Reykjavík sé að fara undir hraun, en ætti samt að vera næg áminning um hversu óskynsamlegt það er fyrir lítið ríki að halda áfram að safna sífellt stærri hluta fólks, stjórnsýslu, fyrirtækja og mikilvægra innviða á eitt horn landsins. Þarna er ábyrgð stjórnvalda mikil.

Öflug byggðastefna er ekki einhver ölmusa eins og maður skynjar því miður oft á umræðunni. Hún er vátrygging fyrir þjóðina alla.

Land þar sem stjórnsýsla, atvinnulíf, menntun, heilbrigðisþjónusta og önnur grunnstarfsemi dreifist á fleiri sterka byggðakjarna er einfaldlega öflugra og sterkara samfélag þegar áföll verða. Ísland hefur rúmt land, öflug samfélög, menntað fólk og innviði víða um land. Á tímum fjarvinnu og stafrænnar stjórnsýslu eru færri rök en nokkru sinni fyrir því að næstum hvert nýtt sérfræðistarf ríkisins þurfi sjálfkrafa að lenda í sama póstnúmeri. Það á ekki að veikja höfuðborgina. Það á að styrkja landið.

Þarna liggur ábyrgð stjórnvalda. Við hverja nýja ríkisstofnun, hvert nýtt opinbert starf og hverja milljarðafjárfestingu í innviðum ætti spurningin ekki aðeins að vera hvað sé ódýrast eða þægilegast í dag, heldur hvað geri Ísland sterkara eftir tuttugu, fimmtíu eða hundrað ár. Ef við höldum áfram að flytja fólk, vald og fjárfestingar á sama blettinn á meðan við skrifum fallegar byggðaáætlanir um hið gagnstæða, þá er vandinn ekki skortur á stefnu. Vandinn er skortur á vilja!