Á síðustu 10 árum fjölgaði störfum ríkissins á höfuðborgarsvæðinu um 2870. Á sama tíma fjölgaði þeim um 10 í sveitarfélaginu Norðurþingi. Til að halda í við sama hlutfall og á höfuðborgarsvæðinu hefði ríkisstarfsmönnum í Norðurþingi þurft að fjölga um 34. Það vantar því 24 störf inn í okkar samfélag í Norðurþingi, sem hefur svo áhrif möguleika til íbúafjölgunar og styður raunar við fækkun.
Ég skil vel og styð í grunninn jafnt vægi atkvæða, en ef ríkisvaldið er stöðugt að efla eitt horn landsins, á kostnað hinna, og ætlar svo að taka rödd okkar burt því okkur fækki, þá verður þetta spýrall sem endar með því að við búum öll á sömu torfunni. Það verður fátækt samfélag. Vaknið þingmenn Norðaustur áður en störfin ykkar verða flutt suður.
Örlygur Hnefill Örlygsson, ristjóri Húsavík.com
Ítarlega verður fjallað um tillögur starfshóps dómsmálaráðherra um fækkun þingmanna á landsbyggðunum á Húsavík.com á morgun.

