Sveitarstjórn Þingeyjarsveitar hefur lýst yfir fullu trausti og stuðningi við Katrínu Sigurjónsdóttur sveitarstjóra í kjölfar umræðu um mögulegt vanhæfi hennar til að fjalla um málefni Samherja. Umræðan tengist viðskiptum fyrirtækisins Samleiðar, sem er í eigu Katrínar og eiginmanns hennar, við Samherja. Sveitarstjórnin samþykkti samhljóða bókun þar sem fram kemur að hún telji Katrínu almennt ekki vanhæfa til að fjalla um málefni fiskþurrkunar Samherja á vettvangi sveitarfélagsins, en að hæfi verði metið í hverju máli fyrir sig.
Sveitarstjórnin segir að henni hafi verið kunnugt um eignarhald Katrínar í Samleið áður en hún tók við starfi sveitarstjóra 5. ágúst síðastliðinn. Frá þeim tíma hafi aðeins eitt mál tengt Samherja eða Laugafiski komið til umfjöllunar sveitarstjórnar og þar hafi ekki verið um stjórnsýsluákvörðun að ræða. Knútur Emil Jónasson, oddviti Þingeyjarsveitar, ræddi yfirlýsinguna í fréttum RÚV í morgun og þar sagði hann málið hafi fengið óþarflega mikla athygli. „Við stöndum klárlega með okkar ágæta sveitarstjóra. Hún skoraði bara vel í öllum kvörðum og er akkúrat sá sveitarstjóri sem við sækjumst eftir,“ var haft eftir Knúti í frétt RÚV um málið.
Í bókun sveitarstjórnar eru jafnframt lýst vonbrigði með umfjöllun RÚV og hún sögð byggð á hæpnum forsendum. Sveitarstjórnin segir starfsemi Samherja á Laugum hafa mikla þýðingu fyrir atvinnulíf og samfélag á svæðinu, þótt starfsemin sé ekki óumdeild. Knútur segir mikilvægt að eignarhald og hagsmunatengsl í stjórnmálum séu opin og skýr, en telur tengsl Katrínar í þessu tilviki ekki þess eðlis að þau hafi haft áhrif á framvindu mála hjá sveitarfélaginu.

