Óttast skerta opnun og fækkun starfa hjá Sjóböðunum vegna hækkunar virðisaukaskatts

Fyrirhuguð hækkun virðisaukaskatts á baðlón úr 11% í 24% gæti haft bein áhrif á opnunartíma Sjóbaðanna á Húsavík, sérstaklega yfir vetrarmánuðina, og leitt til fækkunar stöðugilda. Ármann Örn Gunnlaugsson, framkvæmdastjóri Geosea, segir málið grafalvarlegt og að samkeppnishæfni greinarinnar sé undir.

„Þetta er auðvitað grafalvarlegt mál og kemur til með að hafa gríðarleg áhrif á rekstur baðlóna, þá sérstaklega fyrir minni baðlón lengra frá höfuðborgarsvæðinu,“ segir Ármann Örn í samtali við Húsavík.com.

Hann segir áhrifin geta komið hratt fram verði hækkunin að veruleika.

„Fari þessi hækkun í gegn er ekki ólíklegt að það hafi strax áhrif á opnunartíma, sér í lagi yfir vetrarmánuðina, með tilheyrandi þjónustuskerðingu, fækkun stöðugilda, lækkun á tekjum sveitarfélagsins og svo mætti lengi telja. Að setja þetta fram án fyrirvara og án áhrifamats er ekki bara óábyrgt heldur hreinlega glórulaust. Samkeppnishæfni greinarinnar er undir.“

Sjóböðin gjörbreyttu ferðaþjónustu á Húsavík

Geosea opnaði árið 2018 og höfðu strax mikil áhrif á ferðaþjónustu á svæðinu. Uppbyggingin skapaði ný heilsársstörf og styrkti Húsavík sem áfangastað, ekki síst utan hefðbundins háannatíma.

Áhrif fyrirtækis á borð við Sjóböðin ná jafnframt langt út fyrir rekstur baðanna sjálfra. Gestir sem koma í Sjóböðin nýta gistingu, veitingastaði, verslanir, hvalaskoðun, söfn og aðra þjónustu á svæðinu. Þá hafa böðin frá upphafi notið mikilla vinsælda meðal heimafólks og innlendra ferðamanna.

Samtök ferðaþjónustunnar hafa lagst alfarið gegn skattahækkuninni og segja hana veikja samkeppnishæfni íslenskrar ferðaþjónustu, auka óvissu í rekstrarumhverfi fyrirtækja og vinna gegn verðmætasköpun og dreifingu ferðamanna um landið.

Níu sveitarstjórnarmenn og sveitarstjórar víða af landinu hafa einnig gagnrýnt áformin, þeirra á meðal Bergþór Bjarnason, sveitarstjóri Norðurþings, og Knútur Emil Jónasson, oddviti Þingeyjarsveitar. Þau hafa bent á að baðlón hafi skapað störf, aukið fjárfestingu og orðið mikilvægir áfangastaðir á landsbyggðinni.

Vök gæti lokað fjóra mánuði á ári

Fyrirtæki annars staðar á landsbyggðinni hafa þegar lagt mat á mögulegar afleiðingar breytingarinnar. Vök við Urriðavatn á Austurlandi var rekið með tapi í fimm mánuði árið 2025. Forsvarsmenn fyrirtækisins áætla að verði skatturinn hækkaður í 24% geti taprekstur orðið í sjö mánuði ársins.

Fyrirtækið hefur sagt að þá yrði óhjákvæmilegt að skoða alvarlega að loka baðstaðnum í að minnsta kosti fjóra erfiðustu mánuði ársins. Sextán heilsársstörf eru hjá Vök.

Skógarböðin við Akureyri hafa sömuleiðis varað við áhrifum hækkunarinnar. Þar eru aðeins um 30 til 40% gesta erlendir ferðamenn og meirihlutinn því heimafólk og aðrir Íslendingar. Eigendur Skógarbaðanna segja breytinguna jafnframt grafa undan fyrirsjáanleika í rekstri, en félagið stendur um þessar mundir í milljarða fjárfestingum á Norðurlandi.

Lofað að hækka ekki VSK á ferðaþjónustu

Áformin hafa einnig vakið athygli vegna yfirlýsinga sem gefnar voru þegar núverandi ríkisstjórn tók við. Á blaðamannafundi við myndun ríkisstjórnarinnar 21. desember 2024 sagði Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, nú utanríkisráðherra:

„Við ætlum ekki að hækka virðisaukaskatt á ferðaþjónustu.“

Jóhannes Þór Skúlason, framkvæmdastjóri Samtaka ferðaþjónustunnar, segir hækkun virðisaukaskatts á ferðaþjónustu vera „rauða línu“ og að með breytingunni væri gengið gegn skýrum yfirlýsingum stjórnvalda. Hann hefur jafnframt gagnrýnt að tekjuáhrif hækkunarinnar séu reiknuð án þess að tekið sé nægilegt tillit til breytinga á eftirspurn, verðlagningu og samkeppnisstöðu.

Landsbyggðin nýlega orðið fyrir öðru skattahöggi

Gagnrýnin á baðlónaskattinn kemur á sama tíma og landsbyggðin glímir við afleiðingar fyrri breytinga á skattlagningu skemmtiferðaskipa.

Komum skemmtiferðaskipa til hafna Norðurþings hefur fækkað um nær 60% frá síðasta sumri. Cruise Iceland hefur rakið verulegan hluta samdráttarins til afnáms tollfrelsis á hringsiglingum og aukinnar gjaldtöku. Þótt stjórnvöld hafi síðan undið ofan af hluta breytinganna eru siglingaáætlanir skipafélaga ákveðnar nokkur ár fram í tímann og því tekur langan tíma að endurheimta tapaðar komur.

Fækkunin hefur áhrif langt út fyrir hafnirnar sjálfar og kemur niður á söfnum, afþreyingarfyrirtækjum, rútufyrirtækjum, verslunum og veitingastöðum í smærri byggðarlögum.

Ármann Örn segir fyrirhugaða hækkun á baðlónin geta orðið annað þungt högg fyrir ferðaþjónustu utan höfuðborgarsvæðisins. „Samkeppnishæfni greinarinnar er undir.“

Nánar er fjallað um málið í leiðara dagsins: Enn á að skattleggja lífæð landsbyggðanna