Á Raufarhöfn má nú finna 12 tréflugla víðsvegar um þorpið.  Þessir fallegu fuglar er afrakstur samstarfsverkefnisins Wooden  Wings sem unnið var af nemendum Grunnskólans á Raufarhöfn, Rannsóknarmiðstöðinni Rif ásamt hansverksfólki og sérfræðingum á Raufarhöfn.  Verkefnið var styrkt af Foreldrafélagi skólans og  Frumkvæðissjóði brothættra byggða.

Nemendur fræddust um helstu fuglategundir sem finna má á Raufarhöfn og smíðuðu tréfuglana úr endurunnum rekavið sem sóttur var á Melrakkasléttu og unnu að þeim upplýsingum sem finna má hjá hverjum fugli en hver fugl hefur QR-kóða sem vísar á ljósmyndir, fuglahljóð og upplýsingar í upplestri nemenda.  Rannsóknarmiðstöðin Rif telur verkefnið fagna staðundnu fuglalífi og stuðlar að umhverfisvitund og efla staðbundna þekkingu og nýsköpun í dreifbýli.