Erlendir ferðamenn lentu í árekstri við Mývatn

Lake Mývatn near Húsavík

Þrír meiddust í tveggja bíla árekstri á Þjóðvegi 1 við Mývatn í gær. Ökumenn beggja bíla og einn farþegi voru flutt á bráðamóttöku til frekari skoðunar, en meiðsli þeirra virtust við fyrstu sýn vera minniháttar.

Bílarnir voru mikið skemmdir og óökufærir eftir áreksturinn. Þeir sem lentu í árekstrinum voru erlendir ferðamenn. Í vetur varð annað umferðarslys skammt frá slysstaðnum þegar erlendur ferðamaður ók út af veginum.