Þau Lilja Hrund Másdóttir og Pétur Bergmann Árnason voru að grafa fyrir palli við heimili sitt í Brúnagerði á Húsavík í gær þegar upp úr jörðinni kom Svala ferna sem hafði legið í jörðinni um áratugaskeið. Líklegt er að Svalinn sé frá árunum 1988 til 1990.
„Við vorum að grafa í garðinum og þá kom þessi Svalaferna í ljós. Kom okkur heldur betur á óvart og hann í góðu standi miðað við aldur,“ segir Lilja Hrund.
Drykkurinn Svali kom á markað árið 1982 og sló strax í gegn. Svali varð fljótt einn vinsælasti drykkur landsins og skipaði sérstakan sess í hjörtum íslenskra barna og unglinga á níunda áratugnum.
Atli Sigurður Kristjánsson, framkvæmdastjóri markaðssviðs Coca-Cola á Íslandi, segir í samtali við Húsavík.com að alltaf sé gaman að heyra fréttir af Svala.
„Það er alltaf gaman að fá fréttir af Svala, enda er hann mér mjög kær,“ segir Atli.
Aðspurður hvort von sé á endurkomu þessa vinsæla drykks svarar hann brosandi: „Aldrei segja aldrei. Ég er einn mesti svalamaður landsins.“
Svali lét ekki aðeins að sér kveða hér á landi. Árið 1986 hófst útflutningur drykksins til Bretlands, þar sem hann var boðinn til sölu í verslunum og varð þar með einn af fyrstu íslensku drykkjunum sem reyndu fyrir sér á erlendum mörkuðum.

