Hópur 22 nemenda og kennara frá bandaríska háskólanum Trinity University heimsótti Húsavík á föstudag sem hluta af tveggja vikna námsferð um Ísland. Ferðin er hluti af þverfaglegum áfanga þar sem lögð er áhersla á jarðfræði, efnahagsmál, sögu og menningu Íslands.
Nemendurnir fengu fyrirlestur í Könnunarsafninu þar sem fjallað var um jarðfræði í Þingeyjarsýslum og það hlutverk sem svæðið gegndi við þjálfun geimfara Apollo-áætlunarinnar á sjöunda áratugnum.
Í lok heimsóknarinnar fengu gestirnir að skoða jarðfræðihamar Neil Armstrong, sem hann notaði við jarðfræðiþjálfun sína fyrir Apollo 11 leiðangurinn. Hamarinn er einn merkasti gripur Könnunarsafnsins og vakti mikla athygli meðal nemendanna.
„Ég get eiginlega ekki lýst viðbrögðum þeirra þegar þau sáu hamarinn. Þetta eru nemendur sem hafa helgað sig jarðfræðinámi og höfðu nýlokið vettvangsferðum um nokkur af sömu svæðum og Apollo-geimfararnir rannsökuðu á sínum tíma. Fyrir þau var þetta einstök upplifun,“ sagði Örlygur Hnefill Örlygsson, forstöðumaður safnsins.
Nemendurnir fengu að taka mynd með hamrinum sem verður hengd upp í háskólanum í Texas til minningar um heimsóknina til Húsavíkur. Sá nemandi sem hélt á hamrinum var verðandi jarðfræðingurinn Anna Heikes, sem vakti athygli fyrir mikla þekkingu sína á Apollo-áætluninni og áhugaverðar spurningar eftir fyrirlesturinn. Að hennar sögn var þessi stund einn af hápunktum tveggja vikna Íslandsferðar þeirra.
Trinity University var stofnaður árið 1869 og er einn af virtari einkaháskólum Texas-ríkis. Um 2.600 nemendur stunda þar nám og er skólinn með öflugt nám í raunvísindum, hugvísindum og samfélagsgreinum. Í Íslandsferðinni kynna nemendur sér meðal annars eldvirkni, jökla, jarðhita, loftslagsbreytingar, íslenska sögu og menningu, auk þess að skoða hvernig náttúruauðlindir hafa mótað íslenskt samfélag.

