Björgunarsveitin Garðar á Húsavík var kölluð út á níunda tímanum í kvöld þegar rannsóknarbáturinn Arcpath, sem er á vegum Rannsóknarseturs Háskóla Íslands á Húsavík, varð vélarvana á Skjálfandaflóa.
Að sögn Hjálmars Boga Hafliðasonar, sem stýrði aðgerðum, gekk útkallið vel fyrir sig og var engin hætta á ferðum.
„Báturinn fékk í skrúfuna og varð því vélarvana. Við drógum hann til hafnar á Húsavík. Þetta gekk allt mjög vel og það var aldrei nein hætta á ferðum,“ sagði Hjálmar í samtali við Húsavík.com í kvöld.
Björgunarskipið Villi Páls, sem er í eigu björgunarsveitarinnar Garðars, var sent á vettvang og sá um að draga bátinn til hafnar.
Arcpath hefur verið notaður við rannsóknir á lífríki Skjálfandaflóa, meðal annars hvalarannsóknir, og var við störf á flóanum þegar óhappið varð.

