Skrúðganga, karamelluregn og fjölskylduskemmtun á þjóðhátíðardaginn

Það verður hátíðardagskrá í öllum byggðakjörnum Norðurþings á þjóðhátíðardaginn 17. júní. Á Húsavík hefst dagskráin snemma morguns með fjölskylduratleik og opnu húsi í Safnahúsinu, en hápunktur dagsins verður hefðbundin skrúðganga frá íþróttavellinum að Safnahúsinu og hátíðarsamkoma þar sem meðal annars verður flutt ávarp fjallkonunnar, hátíðarræða og boðið upp á karamelluregn úr körfubíl slökkviliðsins. Að venju verður einnig fjölbreytt dagskrá fyrir alla fjölskylduna, með andlitsmálun, hestum, tónlist, kaffi og kræsingum.

Dagskrá á Húsavík má sjá hér að neðan, en einnig er búið að birta dagskrá fyrir hátíðarhöldin á Raufarhöfn á vef sveitarfélagsins.

08:00 Fánar dregnir að húni

09:00 Fjölskylduratleikur
Fyrsta vísbending birtist á vef Norðurþings ásamt reglum og leiðbeiningum um þátttöku Þann 17. júni – www.nordurthing.is
Svör send inn á nordurthing@nordurthing.is merkt Ratleikur og vinningshafi dreginn út

 

11:00 – 17:00 Safnahús
Í tilefni dagsins verður heitt á könnunni og frítt inn.
Sýningar:
– Á jarðhæð. Mjólkursamlag Þingeyinga “himneskt bragð, jarðnesk hollusta”
– Í Myndlistasal, “Fljótandi dagar” sýning á ljósmyndum Christopher Taylor

11:00 Messa í Húsavíkurkirkju
Prestur verður Guðmundur Guðmundsson. Kirkjukórinn syngur undir stjórn Attila Szebik.
Eftir stundina í kirkjunni opnar Guðmundur myndlistarsýningu í Bjarnahúsi: Andlit, náttúra og minningar frá Afríku. Það verður heitt á könnunni. Sýninguna verður hægt að skoða um daginn og svo áfram þegar Bjarnahús er opið.

 

13:00 Mæting á íþróttavöll
– Undirbúningur fyrir skrúðgöngu
– Andlitsmálun (Umsjón 7. flokkur karla Völsungs)
– Grillaðar pylsur í boði Norðurþings (Umsjón 7. flokkur karla Völsungs)

14:00 Skrúðganga frá Íþróttavellinum að safnahúsinu
Tónasmiðjan sér um tónlist

14:30 Hátíðardagskrá fyrir utan Safnahúsið
– Ávarp Fjallkonu
– Hátíðarræða
– Krabbameinsfélag Þingeyinga afhendir sveitarfélaginu bekki í Skrúðgarðinn
– Kirkjukór Húsavíkurkirkju syngur nokkur lög undir stjórn Attila Szebik
– Karamelluregn úr körfubíl slökkviliðsins

15:30 Sunnan við Miðhvammi
Hestamannafélagið Grani býður á bak

15:30 Í salnum Miðhvammi
Kaffi, kakó og kleinur í boði Norðurþings (Umsjón 3 flokkur kk Völsungs)