Þorgrímur Sigmundsson, þingmaður frá Húsavík, hefur lagt fram þingsályktunartillögu á Alþingi þar sem ríkisstjórninni er falið að ráðast í markvissar aðgerðir til að jafna aðstöðumun barna og ungmenna til íþróttaiðkunar, með sérstakri áherslu á að draga úr þeim mikla ferðakostnaði sem hvílir á fjölskyldum og íþróttafélögum á landsbyggðinni.
Í tillögunni er bent á að verulegt misrétti ríki milli barna eftir búsetu. Þorgrímur segir að kostnaður vegna keppnisferða geti orðið svo mikill að hann leiði til þess að börn hætti í íþróttum, auk þess sem fjárhagsbyrðin leggist þungt á fjölskyldur og félög á landsbyggðinni.
Samkvæmt greinargerðinni nam umsóknarþörf í Ferðasjóð ÍSÍ árið 2024 alls 757 milljónum króna, en aðeins var úthlutað tæpum 124 milljónum, eða um 16% af raunverulegri þörf. Þá er bent á að kostnaður einnar fjölskyldu geti farið yfir 1,8 milljónir króna á ári vegna íþróttaferða barna.
Þorgrímur leggur til stóraukið fjármagn í Ferðasjóð ÍSÍ þannig að sjóðurinn endurspegli betur raunverulegan ferðakostnað félaganna, auk innleiðingar „íþróttaloftbrúar“, sambærilegrar Loftbrúnni, sem myndi tryggja iðkendum og liðum verulegan afslátt af flugferðum vegna keppnisferða. Þá vill hann sjá skattaívilnanir og aukna tækjastyrki til íþróttafélaga sem skráð eru sem almannaheillafélög, meðal annars vegna kaupa á öruggum 9–15 manna farartækjum og niðurgreiðslu ferðakostnaðar.
Í greinargerðinni er jafnframt lögð áhersla á öryggissjónarmið. Þar segir að fjárskortur neyði mörg félög til að velja ódýrari en síður örugga ferðamáta. Algengt sé að foreldrar aki löngum vegalengdum yfir erfiða fjallvegi í myrkri og hálku eftir langan vinnudag eða keppni.
„Öryggi barna á ekki að velta á því hvort til séu peningar fyrir öruggum ferðamáta,“ segir meðal annars í greinargerðinni.
Samkvæmt tillögunni á ráðherra íþróttamála að upplýsa Alþingi um framgang mála á haustþingi 2026.
Ljósmynd: Örlygur Hnefill

