Öflugt samfélag
Nú þegar kosningabaráttan í Norðurþingi er að ljúka viljum við á M – Lista Samfélagsins færa íbúum, starfsfólki sveitarfélagsins, fyrirtækjum, stofnunum, félögum og öllum þeim sem hafa tekið svo vel á móti okkur innilegar þakkir fyrir móttökurnar.
Undanfarnar vikur höfum við farið um allt sveitarfélagið, heimsótt stofnanir, lítil og stór fyrirtæki, íbúa og félagasamtök. Alls staðar höfum við fundið fyrir hlýjum móttökum, áhuga á málefnum sveitarfélagsins, áhuga á því sem Listi Samfélagsins hefur kynnt og staðið fyrir og vilja fólks til að ræða opinskátt stöðu og framtíð Norðurþings af réttsýni og bjartsýni.
Takk stjórnsýsla Norðurþings
Við viljum sérstaklega þakka starfsfólki Norðurþings fyrir fagmennsku, hjálpsemi og góð ráð og samskipti. Við höfum verið aufúsugestir í stjórnsýslunni og hjá stofnunum sveitarfélagsins og fundið skýrt hversu mikilvægur mannauðurinn er fyrir samfélagið okkar. Þjónusta sveitarfélagsins byggir á öflugu starfsfólki sem sinnir sínum störfum af metnaði í öllum málaflokkum.
Mannlífið er styrkurinn
Norðurþing býr yfir miklum auðlindum. Náttúran er einstök, atvinnulífið dugmikið og fjölbreytt og tækifærin mörg. En stærsta auðlindin er fólkið sem hér býr, hugmyndir þess, sköpunarkraftur og dugnaður. Hér er kraftmikið mannlíf, samheldni og ríkur vilji til að byggja samfélagið áfram upp.
Við höfum fundið fyrir miklum áhuga á sjónarmiðum og þátttöku M Lista Samfélagsins. Það skiptir máli að ný sjónarmið fái að heyrast og að málefni séu rædd af hreinskilni og ábyrgð.
Við teljum mikilvægt að vera ekki meðvirk með röngum ákvörðunum heldur leggja fram uppbyggilegar ígrundaðar hugmyndir og standa með því sem við teljum farsælast fyrir íbúa, fyrirtæki, stofnanir og samfélagið allt.
Þakklæti til allra sem koma að kosningunum
Við viljum færa Framsýn stéttarfélagi sérstakar þakkir fyrir þá góðu aðstöðu sem félagið hefur veitt okkur í aðdraganda kosninganna.
Jafnframt viljum við þakka meðframbjóðendum okkar fyrir málefnalega og heiðarlega kosningabaráttu. Þá eiga þeir fjölmörgu sem koma að framkvæmd kosninga í Norðurþingi þakkir skyldar og öllum þeim sem hafa staðið fyrir viðburðum, fundum og skapað líf og stemningu í samfélaginu á þessum tíma. Fremstur meðal jafningja í þessu fer snillingurinn Örlygur Hnefill í husavik.com.
Við erum samstarfsfús
Framboð M – Lista Samfélagsins er borið fram með ákveðin og skýr markmið, styrkara atvinnulíf, sterkir innviðir, skilvirk stjórnsýsla og fjölskylduvænt umhverfi.
Við óskum eftir góðu umboði og erum mjög tilbúin í jákvætt samstarf við öll önnur framboð sem vilja ganga í lið með okkur að gera Norðurþing stærra og betra. Við erum tilbúin til þeirra verka.
Við elskum alla
Að lokum viljum við þakka frambjóðendum M – Lista samfélagsins, fjölskyldum þeirra og vinum fyrir ómetanlegan stuðning, vinnusemi, elju og samstöðu í gegnum kosningabaráttu s.l. liðna vikna. Við erum þakklát fyrir samtölin, traustið og móttökurnar.
Við erum klár til verka fyrir Norðurþing.
Veljum M – Lista Samfélagsins á kjördag.
Rúnar Traustason, oddviti M – Lista Samfélagsins.
Ágúst Sigurður Óskarsson, skipar 2. sætið á M – Lista Samfélagsins.

