V-lista velferðar er annt um jafnrétti á öllum sviðum. Við viljum lýðræði, við viljum samráð, við viljum opna stjórnsýslu. Við viljum jöfn tækifæri. Við fæðumst ekki öll með jöfn tækifæri en við viljum samfélag þar sem fólk hefur raunverulega jöfn tækifæri.
Til að búa til gott samfélag þá þarf jafnrétti og það þarf að hlúa að þeim sem þurfa á því að halda. Ef við stöndum saman og vinnum saman þá á að vera pláss fyrir okkur öll í Norðurþingi.
Á síðasta sveitarstjórnarfundi Norðurþings var ýmislegt sagt, ég var ekki á þeim fundi og því langar mig til að árétta nokkra hluti.
Opin stjórnsýsla skiptir máli, sérstaklega þegar verið er að ráðstafa almannafé. Þegar kemur að Orkuveitu Húsavíkur (OH) eigum við öll að sitja við sama borð og fyrirtæki í sveitarfélaginu eiga að fá sömu kjör.
Í viðskiptastefnu OH er ekki heimild fyrir sérstökum afslætti til stórnotenda. Samt hafa sum fyrirtæki fengið mun betri kjör en önnur. Ég hef áhyggjur af því að það standist hvorki reglur né þá stefnu sem samþykkt hefur verið.
Málið snýst ekki um hver sagði frá heldur um það að öll eigi að fá sanngjarna meðferð. Þegar stórar ákvarðanir eru teknar þarf að gera það opinskátt og af ábyrgð.
V-listi velferðar vill heiðarlega stjórnsýslu, jafnræði og sanngirni fyrir öll í Norðurþingi.
Setjum X við V í sveitarstjórnarkosningunum þann 16. maí.
Aldey Unnar Traustadóttir
Oddviti V-lista Velferðar í Norðurþingi

