Opin stjórnsýsla og jafnrétti

V-lista velferðar er annt um jafnrétti á öllum sviðum. Við viljum lýðræði, við viljum samráð, við viljum opna stjórnsýslu. Við viljum jöfn tækifæri. Við fæðumst ekki öll með jöfn tækifæri en við viljum samfélag þar sem fólk hefur raunverulega jöfn tækifæri. Til að búa til gott samfélag þá þarf …

Íbúar hafa rétt á upplýstri og málefnalegri umræðu um vindorku

Það er greinilegt að málefnaleg grein frambjóðanda V-lista Velferðar sem snerist um gagnrýni á uppbyggingaráform á groddalega stórum vindorkugörðum á Melrakkasléttu fór illa fyrir brjóstið á framkvæmdastjóra Qair Ísland ehf. sem birti ítarlega grein til varnar áformum fyrirtækisins. Eðlilega vekur það upp sterkar tilfinningar hjá hagsmunaðilum, sem eiga mikið …

Um mannréttindi

Nýlega var kastað fram spurningu á Alþingi þar sem verið er að gagnrýna notkun regnbogafána í og við skólabyggingar. Þessari spurningu er kastað fram af lítilsvirðingu og að mínu mati gerð tilraun til að útiloka ákveðna hópa í samfélaginu. Þessu er líkt saman við trú og nefnt að ekki …

V-listi Velferðar samþykkir framboðslista í Norðurþingi

V-listi Velferðar hefur samþykkt framboðslista sinn fyrir komandi sveitarstjórnarkosningar í Norðurþingi. Á fundi framboðsins í gær var listinn lagður fram af uppstillingarnefnd og samþykktur. Eins og áður hafði komið fram í frétt á Húasvík.com er oddviti listans Aldey Unnar Traustadóttir, hjúkrunarfræðingur og sveitarstjórnarfulltrúi. Í tilkynningu frá framboðinu segir að …

Aldey leiðir nýtt vinstri framboð Velferðar

Fulltrúar V-listans, hins nýja vinstri framboðs Velferðar, funduðu á Húsavík í gærkvöld þar sem gengið var frá uppstillingu í efstu sæti framboðslistans fyrir sveitarstjórnarkosningarnar í Norðurþingi í vor. Aldey Unnar Traustadóttir, hjúkrunarfræðingur og sveitarstjórnarfulltrúi í Norðurþingi frá árinu 2021, leiðir listann. Í samtali við Húsavík.com í gær sagði Aldey …