Grunnþjónusta barna má ekki víkja: Sundlaugin í Lundi á að vera í forgangi

Eftir því sem ég best veit sem íbúi Norðurþings hefur enduruppbygging sundlaugarinnar í Lundi verið á fjárhagsáætlun sveitarfélagsins árin 2025-2027. Sögu þessa máls er hægt að rekja til ársins 2023 en laugin hefur ekki verið opin fyrir almenning síðan þá. Sú ákvörðun var tekin af stjórnsýslunni í maí 2024 á 185. fundi fjölskylduráðs

“Þar sem ekki var gert ráð fyrir fjármunum á árinu í endurnýjun sundlaugarinnar í Lundi og vegna ástands sundlaugarinnar sér fjölskylduráð sér ekki fært að hafa laugina opna í sumar.”

Mál sundlaugarinnar veltist milli ráða vorið 2024 þar sem ástand hennar var talið það slæmt að ekki væri hægt að bjóða almenningi þar inn og ekki heldur skólabörnum. Það var svo á 145. fundi sveitarstjórnar þann 28. maí sem eftirfarandi var bókað.

 “Undirritaðir óska bókað:

 Stefna sveitarstjórnar er að framtíðar skólastarf verði í Lundi. Að mati undirritaðra er því mikilvægt að skoða af fullri alvöru möguleikann á að byggja upp sundlaugina í Lundi.

 Aldey Unnar Traustadóttir og Ingibjörg Benediktsdóttir
Áki Hauksson og Benóný Valur Jakobsson taka undir bókunina.”

Yfir sumarið 2024 bárust stjórnsýslunni erindi frá foreldrafélagi Öxarfjarðarskóla, hverfisráði Kelduhverfis og hverfisráði Öxarfjarðar til að ýta á eftir þessu máli fyrir haustið, áður en skólakennsla myndi hefjast. Það var svo á 467. fundi Byggðaráðs og 197. fundi Fjölskylduráðs þann 8. október 2024 að kostnaðarmat á framkvæmdum við endurnýjun á sundlaugarkari, heitum potti og lagnakjallara með tilheyrandi búnaði í sundlauginni í Lundi lá fyrir. Þá var eftirfarandi bókað hjá Fjölskylduráði:

“Samkvæmt 2. mgr. 11. gr. íþróttalaga nr. 64/1998 eiga öll börn að læra sund nema þau séu ófær til þess að mati læknis. Í 23. kafla aðalnámskrár grunnskóla, sem hefur ígildi reglugerðar, er fjallað um skólasund en þar segir m.a. að í skólasundi sé miðað við að nemendur fái a.m.k. einn sundtíma á stundaskrá skóla í hverri viku skólaársins eða að þar sem slíku skipulagi verður ekki komið við skuli kenna skólasund á árlegum námskeiðum og að lágmarki 20 kennslustundir fyrir hvern nemanda.

 Ef skipuleggja þyrfti til lengri tíma sundkennslu nemenda í Öxarfjarðarskóla með þeim hætti að hún færi fram í öðrum sundlaugum sveitarfélagsins hefði það í för með sér umtalsverðan kostnað við skólaakstur, u.þ.b. 2,5-4 mkr. á ári m.v. akstur í 20 daga á skólaárinu til Húsavíkur eða Raufarhafnar. Að viðbættri leigu á húsnæði fyrir nemendur og starsfólk skólans vegna kennslu annarra námsgreina samhliða sundkennslunni, þar sem skipta þarf nemendum skólans upp í hópa í sundkennslunni og sinna annarri kennslu samhliða því að sundkennslan fer fram.

 Í ljósi framangreinds telur fjölskylduráð að lagalegar skyldur Norðurþings gagnvart nemendum í Lundi og sundkennslu verði best uppfylltar með endurnýjun sundlaugar í Lundi.

 Ljóst er að ástand sundlaugarinnar er með þeim hætti að hún verður ekki opnuð aftur fyrir almenning í óbreyttu ástandi. Þegar sundkennslu þessa skólaárs er lokið mun sundkennsla nemenda í Öxarfjarðarskóla þurfa að fara fram annars staðar en í Lundi þar til ný laug hefur verið byggð.

 

 Það er vilji fjölskylduráðs að ný sundlaug verði byggð upp í Lundi. Fjölskylduráð vísar endurnýjun sundlaugar í Lundi til vinnu við stefnumótun um íþrótta- og tómstundastarf.

 Jafnframt vísar ráðið málinu til skipulags- og framkvæmdaráðs og gerðar fjárhagsáætlunar og þriggja ára áætlunar m.t.t. hönnunar, útboðs og endurbyggingar sundlaugar í Lundi.”

Þann 24. nóvember 2024 kynnti svo Soffía Gísladóttir, formaður Skipulags- og framkvæmdaráðs á íbúafundi í Lundi að í drögum fjárhagsáætlunar væri áætlaður hönnunar- og framkvæmdakostnaður upp á 75 milljónir ásamt 50 milljónum til viðbótar.  Það væri áætlað að framkvæmdum yrði lokið 2027. Þá færi hönnunarferlið fram árið 2025 og framkvæmdir árin 2026 og 2027.

Sundkennsla skólabarna í Lundi fyrir skólaárið 2025-2026 fór fram í Lundi haustið 2025 þar sem reynt var að uppfylla að lágmarki 20 kennslustundir fyrir hvern nemanda á 6 vikum. Þetta tókst að ég best veit þó einhverjir dagar hafi dottið út vegna bilana. Sundkennslu fyrir skólaárið 2026-2027 átti svo að leysa með sama hætti vorið 2027 í nýrri sundlaug í Lundi.

Nú hefur meirihluti Sveitastjórnar slegið þeirri framkvæmd, ásamt tveimur öðrum, á frest til næsta árs vegna fjárhagslegra erfiðleika hjá sveitarfélaginu. Þessi niðurstaða kemur mér því miður ekki á óvart, en það er mín upplifun að fulltrúar Framsóknar- og Sjálfstæðisflokksins hafa ekki lagt sig mikið fram um að framkvæmdin verði að veruleika og hafa talið fram ýmsar ástæður fyrir frestuninni. Þau hafa hins vegar ekki upplýst um það hvers vegna þessi tiltekna framkvæmd stóðst ekki þennan niðurskurð umfram aðrar fyrirhugaðar framkvæmdir á áætlun. Óbreyttur íbúi sveitarfélagsins getur ekki með nokkru móti séð hvað er á framkvæmdaáætlun þessa árs hjá sveitarfélaginu, eða séð á fjárhagsáætlun í hvað peningarnir fara nákvæmlega.

Það var á 518. fundi Byggðaráðs þann 23. mars s.l. sem þessum fjárfestingum, sundlauginni í Lundi, framkvæmdum á stjórnsýsluhúsi og endurnýjun á gólfi og stúku í íþróttahöll á Húsavík, var slegið á frest. Samtals nema þær um 190 m.kr. sem er einmitt sama upphæð og Hafnarsjóður þarf til að greiða vegna innheimtu á farþegagjöldum. Það liggur þó fyrir að frestun a.m.k. tveggja þessara fjárfestinga, þ.e. Sundlauginni í Lundi og framkvæmdum á stjórnsýsluhúsi munu ekki spara sveitarfélaginu allan þennan pening því með henni skapast annar og meiri kostnaður til lengri tíma, eins og fram kemur í bókun á 197. fundi Fjölskylduráðs. Þetta hefur í för með sér að það þarf að endurskipuleggja sundkennslu í Öxarfjarðarskóla með tilheyrandi akstri með nemendur til Húsavíkur til sundkennslu, en fyrir mér er ekki möguleiki að keyra nemendur til Raufarhafnar í þeim tilgangi þó svo að vegalengdin sé svipuð. Þar er viðhaldi sundlaugar ábótavant hvað varðar hljóðvist og ekki boðlegt fyrir hvorki nemendur né kennara að vera með kennslustundir þar. Hvað stjórnsýsluhúsið varðar hafa aðrir frambjóðendur útlistað auknum kostnaði við að fresta þeirri framkvæmd og ekki þörf á að ég geri það hér líka.

Mér finnst ótrúlegt að ekki sé hægt að hagræða í rekstri sveitarfélagsins þannig að þessar framkvæmdir geti orðið. Ég spyr því þessara spurninga til núverandi meirihluta sveitarstjórnar:

  • Hvaða framkvæmdir fá að halda sér á framkvæmdaáætlun og af hverju?
  • Réttlæta þær framkvæmdir að grunnþjónusta við börnin í sveitarfélaginu og lögbundnar skyldur sveitarfélagsins gagnvart þeim sé slegið á frest?
  • Hvar stendur framkvæmdin á sundlauginni í Lundi? Er hönnunarferli lokið eins og áætlað var?

Fulltrúar meirihluta núverandi sveitarstjórnar segja að þeim hafi verið mikið í mun að ljúka þeim framkvæmdum sem nú er slegið á frest en ég get ekki séð að það séu orð að sönnu. Bæði þessi mál, stjórnsýsluhúsið og sundlaugin í Lundi, hófust árið 2023 en þá var PCC á Bakka í fullum blóma og tekjur sveitarfélagsins á góðum stað. Ef það væri raunverulegur vilji til að koma þessum málum áfram hefði það verið gert. Sagan með sundlaugina í Lundi sýnir að svo er ekki.

Sveitarfélagið á að setja framkvæmdir sem snúa að börnum og lagalegum skyldum í forgang og við sem íbúar Norðurþings, sama hvar við búum innan þess, eigum rétt á að grunnþjónusta barna og fjölskyldna sé viðunandi.

Salbjörg Matthíasdóttir,
2. sæti á V-lista Velferðar