Þar sem sveitastjórnarkosningar eru á næsta leiti þá eru farnar af stað umræður og skrifaðar greinar af verðandi og hverfandi fulltrúum í nefndum og ráðum Norðurþings.
Þar sem nýtt framboð býður fram í sveitarfélaginu langar okkur að taka þátt í umræðunni og kynna í leiðinni framboð Ó-listans , sérstaklega þeim sem búa vestan við Kelduhverfi þar sem við flest erum þekkt austan Tjörness.
Þar sem Ó-listinn er nýtt framboð þá erum við kannski ekki með allar tölur um rekstur sveitarfélagsins á hreinu en við frambjóðendur Ó-listans höfum fylgst með rekstri sveitarfélagsins í gegnum árin en þó kannski aðeins í fjarlægð, vegna þess að okkur er ekki sama um hvernig gengur.
En að þeim málum sem skrifað hefur verið hér um þá eru dregnar upp ástæður fyrir ákvörðunum sem teknar hafa verið eða ekki teknar síðustu ár hjá sveitarfélaginu og ber þar hæst Ketilsbrautin vegna myglu og lélegs viðhalds á húsnæðinu undanfarin ár. Það kemur okkur á Ó-listanum ekki á óvart að húsnæði sveitarfélagsins sé ekki eða í litlu viðhaldi. Ketilsbrautin er ekki ein þar undir og virðist því vera mikil innviðaskuld á lágmarks viðhaldi á fasteignum Norðurþings.
Innviðaskuld eins og gjarnan er svo oft notað í dag af ráðamönnum þjóðarinnar þá leynist sú skuld víða í okkar víðfeðmu sveitarfélagi og sú skuld er ekki einungis í viðhaldi fasteigna, heldur á mörgum sviðum. Það er okkar mat að rekstur sveitarfélagsins hefur ekki verið nógu góður og margar rangar ákvarðanir verið teknar sem eru að bíta okkur í bakið núna og viljum við ekki dvelja við það heldur horfa fram á veginn.
Við frambjóðendur Ó-listans höfum áhyggjur af rekstri og framtíð sveitarfélagsins eins og margir aðrir og þess vegna bjóðum við okkur fram og okkur langar að fá að taka þátt í því að efla Norðurþing og gera það gott og spennandi sveitarfélag sem alls staðar er gott að búa í.
Vöntun hefur verið á hagræðingu í rekstri, gagnrýni á þau viðhorf íbúa hafa of oft verið slegin út af borðinu og oftar en ekki þau málefni lögð til hliðar og geymd, og í leiðinni gleymd. Þessu þarf að breyta og að hlustað verði betur á íbúa og mark sé tekið á þeim þó um gagnrýni sé að ræða.
Það er þörf á mun skilvirkari hagræðingu og því að stjórnendur fari betur með tekjur sveitarfélagsins og láti það fjármagn nýtast sem best öllum innviðum sveitarfélagsins.
Að hagræða þarf ekki endilega að þýða skerta þjónustu við íbúa og getur alveg búið til meiri tekjur/ og aukið þjónustu við íbúa. Það er skýr sýn okkar og sjálfsögð krafa og leggjum við mikla áherslu á það að þjónusta við íbúa sveitarfélagsins verði ekki frekar skert heldur haldið í þá þjónustu sem fyrir er. Frekari skerðing á þjónustu er slæm í sveitarfélagi sem þarfnast atvinnuuppbyggingar og verður til þess að tiltrú á að hér sé gott að búa minnkar.
Á þessum óvissu tímum sem nú eru í okkar sveitarfélagi sem snýst þá helst um þörf á frekari atvinnuuppbyggingu, svo talað sé nú ekki um alla óvissuna í landsmálunum og jú heiminum öllum þá verðum við að aðlaga okkur að því og leggja áherslu á að hald í það sem við höfum og horfa vítt á þá möguleika sem í boði eru í sambandi við atvinnu uppbyggingar sem skapa störf, og hlúa að þeim fyrirtækjum sem hér eru fyrir í rekstri og vanda samskipti við þau. Fleiri störf skapa tekjur, öflugt atvinnulíf eflir byggðirnar.
Yfirlýsing fyrirhugaða fyrirtækja sem sýna áhuga sinn á atvinnustarfsemi á Bakka er vel og því ber að fagna, en biðin milli yfirlýsingar og þar til starfsemi hefst getur verið mjög löng. Það kallar á að einblína ekki um of á eitthvað eitt eða einn stað heldur að vera opin fyrir öllum góðum hugmyndum sem þó skaða ekki umhverfi eða ásýnd sveitarfélagsins. Það er ekki eingöngu ríkið sem á að leysa málin, sveitarfélagið þarf að byggja upp umhverfi fyrir skapandi fyrirtæki.
Leggja þarf meiri áherslu á að gera Norðurþing að spennandi valkosti og ákveða líka í leiðinni hvernig sveitarfélag við viljum sjá í framtíðinni, okkur finnst svolítið hafa skort á þá stefnu hjá sveitarfélaginu. Virkjum samtal við íbúa til að fá hugmyndir.
Við á Ó-listanum erum að stærstum hluta sjálfstæðir atvinnurekendur. Við þekkjum það af eigin skinni að þurfa að forgangsraða, sýna aðhald og láta hlutina ganga upp. Þá reynslu viljum við nýta í þágu Norðurþings. Við teljum okkur skilja þarfir íbúa og fyrirtækja og hvaða innviðir þurfa að vera í lagi svo rekstur sveitarfélagsins og hagur allra þar megi blómstra.
Norðurþing hefur upp á ótal möguleika að bjóða. Hér er sterk ferðaþjónusta, öflugur sjávarútvegur með gjöful fiskimið, öflugt fiskeldi, stórfengleg náttúra, þjóðgarður, orka og sterkur landbúnaður með nýsköpun og ferskar frábærar afurðir beint frá býli svo eitthvað sé nefnt.
Við hlökkum til að takast á við þær áskoranir sem fram undan eru og bjóðum okkur fram af heilindum og með hag allra íbúa sveitarfélagsins að leiðarljósi, við höfum trú á að ef að rétt verður að málum staðið þá verði framtíð Norðurþings björt.
Ómar Gunnarsson 1. Sæti X-Ó Óskalistans
Gísli Þór Briem 2.Sæti X-Ó Óskalistans
Einar Sigurðsson 3.Sæti X-Ó Óskalistans

