Valli leikur breskan fjölskylduföður í nýrri herferð Mývatnsstofu

Það er mikið um að vera hjá húsvíska leikaranum Valgeiri Sigurðssyni þessa dagana, en auk þess að fara með eitt af aðalhlutverkunum í uppsetningu Leikfélags Húsavíkur á Rocky Horror, þá er hann einnig að leika í nýrri auglýsingaherferð Mývatnsstofu sem er verið að taka upp nú um páskana. Ásamt Valla fara þau Björk Nóadóttir frá Akureyri og bræðurnir Úlfur 12 ára og Atli 9 ára sem eru ættaðir úr Reykjadal með hlutverk í auglýsingunni.

Herferðinni er ætlað að kynna vetrarferðamennsku í Þingeyjarsveit og leikur Valli þar breskan fjölskylduföður á spennandi ferð um svæði, en auglýsingarnar fara í birtingu í lok sumars og í haust og kynna komandi vetur. Það er Film Húsavík framleiðir auglýsingarnar fyrir Mývatnsstofu.

Valli í hlutverki sögumannsins í uppfærslu LH á Rocky Horror sem sýnt verður um páskana.

Í samræmi við ritstjórnarstefnu Húsavík.com skal tekið fram að Film Húsavík er rekið af sama fyrirtæki og fréttavefurinn Húsavík.com