Það er greinilegt að málefnaleg grein frambjóðanda V-lista Velferðar sem snerist um gagnrýni á uppbyggingaráform á groddalega stórum vindorkugörðum á Melrakkasléttu fór illa fyrir brjóstið á framkvæmdastjóra Qair Ísland ehf. sem birti ítarlega grein til varnar áformum fyrirtækisins.
Eðlilega vekur það upp sterkar tilfinningar hjá hagsmunaðilum, sem eiga mikið undir því að framkvæmdir af þessu tagi verði samþykktar, þegar íbúar Norðurþings sjá sig knúna til að tjá sig og skrifa gegn stórum vindorkuáformum af þessu tagi.
Það er líka eðlilegt að fólk hafi ólíkar skoðanir á stórum framkvæmdum sem hafa áhrif á náttúru og samfélag. Það er líka mikilvægt og lýðræðislegt að fólk skiptist á skoðunum og ræði málin á málefnalegan hátt.
Umræðan um vindorkugarða í víðernum Íslands verður ekki leyst með því að gera lítið úr áhyggjum íbúa á svæðunum í nágrenni fyrirhugaðra vindorkugarða eða kalla áhyggjur þeirra bull. Íbúar eiga rétt á opinni, lýðræðislegri og heiðarlegri umræðu um framtíð svæðisins sem þau búa á og hyggjast gera um ókomna tíð. Það höfum við séð víða um land þar sem íbúar hafa stigið fram og andmælt risavöxnum áformum um vindgarða, eins og til að mynda í Norðurárdal í Borgarbyggð.
Reglur og ramma vantar um vindorku
Það er líka mikilvægt að byggja upp regluverk um vindorku og koma málaflokknum í umsjá opinberra aðila hið fyrsta til að koma í veg fyrir hverskyns fljótræði með von um skjótan gróða í uppbyggingu vindorkuvera.
Framkvæmdaaðilar verða í það minnsta að bíða eftir að þessháttar regluverk verði samþykkt á Alþingi. Það er nefnilega ábyrgð okkar allra að sjá til þess að vandað sé til verka svo náttúra Íslands njóti vafans.
V-listinn stendur með vandaðri umræðu, náttúrunni og rétti fólks til að hafa skoðun á framtíð síns nærumhverfis. Samfélagið okkar verðskuldar það, enda eiga sveitarfélög að vera í fararbroddi í umhverfis -og náttúruvernd og í loftslagsmálum. Náttúran er nefnilega ekki fórnarkostnaður í nafni uppbyggingar heldur grunnur að lífsgæðum, lýðheilsu og framtíðarhagsæld.
Aldey Unnar Traustadóttir, oddviti V-lista Velferðar

