Ný vefsíða iðnaðarsvæðisins á Bakka opnaði í vikunni, en að sögn Björns Gíslasonar verkefnastjóra iðnaðaruppbyggingar á svæðinu er markmið síðunnar að kynna þau tækifæri sem felast í áframhaldandi uppbyggingu svæðisins og veita skýra yfirsýn yfir innviði, þjónustu og samfélagið sem styður við starfsemi á Bakka.
Samhliða opnun síðunnar hefur stjórn Græns iðngarðs á Bakka ákveðið að breyta nafni og vörumerki svæðisins. Heitið Árbakki víkur nú fyrir nafninu Bakki, en Árbakkanafnið náði aldrei að festa sig í sessi. Á íslensku verður því talað um iðnaðarsvæðið á Bakka en á ensku verður notast við heitið Bakki Industrial Park.
Húsavík.com ræddi við Björn um nýju síðuna og þá vinnu sem nú stendur yfir.
„Markmiðið með nýrri heimasíðu eru að reyna að tala meira inn í verkefnin sem eru að skoða Bakka eða eru að leita sér að iðnaðarstaðsetningu á Íslandi. Við reynum að undirstrika sem best allt það sem svæðið hefur með sér: orkuna, heita vatnið, jarðsjóinn, skilgreint og skipulagt iðnaðarsvæði, höfnina og svo auðvitað ekki síst samfélagið sem er tilbúið til að taka á móti nýjum verkefnum,“ segir Björn.
Á síðunni er sérstök áhersla lögð á að kynna framtíðarmöguleika svæðisins fyrir fyrirtækjum og fjárfestum sem skoða uppbyggingu eða starfsemi á Íslandi. Þar er meðal annars farið yfir þá innviði sem þegar eru til staðar á Bakka, svo sem orku-, hafnar- og flutningsmannvirki, auk þess sem fjallað er um samfélagið, þjónustu og mannauð á svæðinu.
Björn segir jafnframt að mikil vinna hafi átt sér stað undanfarna mánuði í samtölum við mögulega fjárfesta.
„Undanfarið hefur verið unnið ötullega í samtölum við nokkur verkefni sem eru áhugasöm um Bakka og eru hlutirnir að færast í rétta átt. Eins og hefur komið fram er róið að því öllum árum að gagnaver geti orðið næsta verkefni sem kemur á Bakka og vonum við að sú mynd skýrist á næstu vikum og mánuðum,“ segir Björn.

