Um mannréttindi

Nýlega var kastað fram spurningu á Alþingi þar sem verið er að gagnrýna notkun regnbogafána í og við skólabyggingar. Þessari spurningu er kastað fram af lítilsvirðingu og að mínu mati gerð tilraun til að útiloka ákveðna hópa í samfélaginu. Þessu er líkt saman við trú og nefnt að ekki megi kirkjan fara inn í skóla.

Við skulum alveg hafa það á kristaltæru að almenn mannréttindi um að fá að vera eins og við erum og finnast við velkomin alveg sama af hvaða kyni, kyngervi, kynþætti eða hver kynhneigð okkar er, er ekki sambærilegt við hvaða trú við veljum okkur. Það að þetta sé borið saman er með ólíkindum og ætti ekki að viðgangast að nokkru leyti.

Í jafnréttisríkinu Íslandi ættum við ekki einu sinni að þurfa að vera að ræða almenn mannréttindi en hérna erum við stödd. Við eigum að fá að vera eins og við erum, það er algjört lágmark. Við sem erum í stjórnmálum þurfum að sýna ábyrgð og fordæmi, það á ekki að útiloka minnihluta hópa. Málfrelsi er sjálfsagður hlutur en málfrelsi má aldrei nota til að lítilsvirða annað fólk eða segja þeim að þau séu ekki velkomin. Það er hættulegt og það er sérstaklega hættulegt þegar forréttindafólk sem fær pláss í fjölmiðlum gerir það.

Ég lofa ykkur því að ég mun gera allt sem í mínu valdi stendur til þess að svona útilokunar hugsanaháttur sé ekki samþykktur í stjórnsýslunni í sveitarfélaginu okkar.

Aldey Unnar Traustadóttir, oddviti V-lista í Norðurþingi