Ungmennaþing SSNE fór fram á Húsavík nú í vikunni, þar sem um 50 ungmenni frá tíu sveitarfélögum á Norðurlandi eystra komu saman til að ræða stöðu ungs fólks og efla þátttöku ungmenna í lýðræðislegri ákvarðanatöku.
„Við ræddum um hvað ungmennaþing er og hvernig við getum haft áhrif og látið okkar skoðun heyrast betur. Við ræddum líka um hvernig ungu fólki og krökkum líður,“ segir Amelia Ásdís Kozaczek, fulltrúi í ungmennaráði Þingeyjarsveitar.
Amelia segir þátttakendur hafi upplifað að þau geti haft raunveruleg áhrif í sínum samfélögum: „Mér finnst að við höfum skýra rödd og við fengum að segja okkar skoðanir við sveitarstjórn þegar við fórum á fund með þeim í vetur og við fundum að það var hlustað á okkar hugmyndir.“
Vinnustofur Ungmennaþings fóru fram á Fosshótel Húsavík en fyrri dagur þingsins var helgaður samveru og hópefli áður en kvölddagskrá tók við, þar sem þátttakendur nutu meðal annars Sjóböðanna eða samveru á hóteli. Seinni daginn var lögð áhersla á fræðslu og samtal, þar sem farið var yfir niðurstöður fyrri ungmennaþinga, auk erinda frá SAMFÉS og Farsældarráði Norðurlands eystra.
Helena Eydís Ingólfsdóttir, formaður byggðaráðs Norðurþings og varaformaður stjórnar SSNE, setti þingið formlega og hvatti ungmennin til að nýta rödd sína og áhrif í samfélaginu. Megináhersla þingsins var á borðavinnu þar sem rætt var um hvernig auka mætti áhrif ungmennaráða, meðal annars með betra samráði við kjörna fulltrúa og auknum sýnileika.
Í lok þingsins mótuðu ungmennaráðin næstu skref í eigin sveitarfélögum og heimsóttu þátttakendur jafnframt Eurovision-safnið og upptökustúdíó á Húsavík, þar sem þau fengu að spreyta sig á beinni sjónvarpsútsendingu.
Í ályktun þingsins er skorað á sveitarstjórnir og framboð til sveitarstjórna að tryggja að ungmennaráð verði virkur hluti af ákvarðanatöku. Þar er lögð áhersla á að ungt fólk vilji taka þátt og hafa raunveruleg áhrif, ekki aðeins í framtíðinni heldur strax í dag.
Niðurstöðum og hugmyndum sem komu fram á þinginu verður fylgt eftir í samstarfi við sveitarfélög á svæðinu, en ályktun þingsins má lesa í heild hér að neðan:
Ályktun Ungmennaþings SSNE á Húsavík 2026
Ungmennaþing SSNE 2026 skorar á sveitarstjórnir og framboð til sveitarstjórna á Norðurlandi eystra að tryggja að ungmennaráð verði virkur og eðlilegur hluti af ákvarðanatöku sveitarfélaga.
Ungt fólk vill taka þátt, láta í sér heyra og hafa áhrif – sérstaklega í málefnum sem snerta líf þeirra, aðstæður og framtíð. Ungmennaráð eru mikilvægur vettvangur fyrir slíka þátttöku og eiga ekki að vera til málamynda heldur raunveruleg rödd í stjórnsýslu sveitarfélaga.
Ungmennaþingið leggur áherslu á að:
Ungmennaráð fái skýrt hlutverk og raunverulegt umboð, ungmennaráð séu höfð með í ráðum þegar fjallað er um málefni sem varða börn og ungmenni, skýrar boðleiðir séu milli ungmennaráða, nefnda og sveitarstjórna og að tekið sé mark á tillögum og sjónarmiðum ungmennaráða, með skýrum svörum og eftirfylgni.
Ungmennaþing SSNE hvetur framboð til sveitarstjórna til að gera þátttöku ungmennaráða að skýrum hluta af stefnu sinni og sýna í verki að rödd ungmenna skiptir máli. Virkt lýðræði byggir á því að ungt fólk hafi tækifæri til að hafa áhrif – ekki aðeins í framtíðinni, heldur hér og nú.

