Húsavíkingar með brekkusönginn og þjóðhátíðarlagið: Væri ekki réttast að hafa þjóðhátíð á Jónasartúni?

Í morgun var tilkynnt um flytjendur þjóðhátíðarlags Vestmanneyinga í ár en það eru Húsvíkingurinn Birgitta Haukdal og Herra Hnetusmjör. Stuttu áður hafði verið greint frá því að annar Húsvíkingur, Ágúst Þór Brynjarsson, myndi stýra brekkusöngnum á Þjóðhátíð í sumar.

Það hefur ekki farið framhjá fólki að Húsavík á þar með sterka aðkomu að einum stærsta viðburði sumarsins og hefur það vakið skemmtilega umræðu á samfélagsmiðlum.

Óskar Páll Davíðsson spurði á Facebook í dag hvort ekki væri „réttast að halda þjóðhátíðina bara á Jóhannstúni?“ og hefur færslan fengið góð viðbrögð og talsverðan meðbyr.

Ágúst Þór lét heldur ekki sitt eftir liggja og skrifaði í athugasemdum að fólk ætti að líka við ef það kallaði túnið „Jónasartún“. Þegar þetta er skrifað hafa um 50 manns smellt á það og tekur blaðamaður þar undir.

Ágúst tekur við keflinu af Magnúsi Kjartani og verður þetta í fyrsta sinn sem Húsvíkingur leiðir brekkusönginn í Herjólfsdal. Hann hefur verið áberandi á tónlistarsviðinu síðustu misseri, meðal annars eftir þátttöku í Söngvakeppni sjónvarpsins árið 2025, og segist í samtali við Húsavík.com afar spenntur fyrir verkefninu, en rætt verður við Ágúst hér á vefnum um helgina um væntanlega útgáfutónleika hans í Húsavíkurkirkju í næsta mánuði.