Af hverju eyðum við peningunum svona?

Sem frambjóðandi á X-M lista Samfélagsins í Norðurþingi hef ég verið með vangaveltur um mörg atriði í rekstri Norðurþings. Auðvitað á maður ekki að vera neikvæður, en skýr og heiðarleg gagnrýni á alltaf rétt á sér og auk þess höfum við í Lista samfélagsins skýrar tillögur um það hvernig má gera betur. Stundum þurfum við einfaldlega að segja hlutina eins og þeir eru.

Stjórnsýsla okkar sveitarfélags er ekki nægilega skilvirk eða hagkvæm. Samtals nema tekjur Norðurþings kr. 7.100 millj., eða kr. 2.912.310 á hvern íbúa 18 ára og eldri.

Allt vinnandi fólk í Norðurþingi greiðir 14,97% af launum sínum í útsvar (skatt). Auk þess fær Norðurþing tekjur af fasteignum, gjöldum og frá Jöfnunarsjóði.

Yngra fólkið vill sparnað og skilvirkni

Yngra fólkið í samfélaginu okkar er vel gert, harðduglegt. Þessi hópur býr við nauman kost fjárhagslega, sérstaklega þegar kemur að stofnun fjölskyldu og kaupum eða leigu á íbúð. Því leyfist því ekki óhóf eða tilefnislaus útgjöld. Það hefur kosið sér framtíð í Norðurþingi og vill geta treyst því að vel sé farið með opinbert fé og því ráðstafað þangað sem þörfin er mest.

Hver króna sem fer í óþarfa kostnað og útgjöld eða tapast vegna stefnuleysis í starfsemi Norðurþings, er króna sem fer ekki í eitthvað sem skiptir þau eða okkur hin máli, s.s. betri aðstöðu fyrir ungt fólk, húsnæði, tækifæri eða einfaldlega öflugra samfélag til að búa í.

Gagnslausir fundir

Ég ætlað að leyfa mér að taka eitt raunverulegt dæmi um fjárútgjöld hjá núverandi meirihluta sem hefðu gjarnan geta misst sín. Um er að ræða fund í Hverfisráði Kelduhverfis 26. febrúar 2026.

Eins og sjá má var hér fullkomlega tilefnis- og gagnslaus fundur. Ekkert efni til að ræða, engin stefnumörkun eða umræða. Aðeins fundur til að halda fund. Þessi fundur kostar okkur íbúa Norðurþings hins vegar kr. 250.000 og öllum má ljóst vera að þeir fjármunir nýtast ekki til nokkurra annarra hluta, s.s. þjónustu við íbúa austan Tjörness, framkvæmdir eða viðhald.

Byggjum betri bæ fyrir unga fólkið

Ef við ætlum að byggja upp samfélag þar sem ungt fólk vill búa í eða setjast að, þurfum við að hugsa um hlutina upp á nýtt. Fækka óþarfa fundum, vera sparsöm og skilvirk í þjónustu sveitarfélagsins. Hver einasta króna í rekstur stjórnsýslu þarf að hafa skýran tilgang og ávinning fyrir íbúa sveitarfélagsins. Við eigum ekki skilið að stjórnsýslan nýti peningana okkar illa.

Við í X-M Lista samfélagsins erum klár til verka!

Höfundur: Jónas – Vopni, fulltrúi á X-M Lista Samfélagsins, stoltur eiginmaður, faðir og afi.