Lundinn er kominn aftur á Skjálfanda og virðist sumarið vera að hefjast af krafti á flóanum.
„Þetta fer vel af stað, það er allt að lifna við eins og þú sérð á þessum fallegu lundamyndum frá í gær. Góðu tíðindi dagsins eru þau að það fannst hnúfubakur áðan á flóanum. Ég sagði það við mitt fólk í morgun að þetta myndi skýrast í dag og það er raunin,“ segir Stefán Guðmundsson, forstjóri Gentle Giants.
Myndirnar sem fylgja fréttinni tók Joséphine, skipstjóri og leiðsögumaður hjá fyrirtækinu.




