Líklegt að dragi úr flugi á Íslandi vegna eldsneytisskorts

Líkurnar á að þotueldsneyti gangi til þurrðar aukast með hverjum degi sem Hormússund helst lokað, að mati sérfræðinga. Erfitt er þó að spá nákvæmlega fyrir um hvenær birgðir klárast, en hættan er talin mest í ríkjum Asíu og að nokkru leyti í Evrópu, sem reiða sig að stórum hluta á olíuafurðir frá Persaflóaríkjum.

Samkvæmt frétt AFP eru birgðir þegar orðnar takmarkaðar í nokkrum Evrópuríkjum, þar á meðal á Íslandi, í Bretlandi og Hollandi. Staðan er hins vegar betri í ríkjum á borð við Pólland, Búlgaríu, Austurríki og Frakkland. Japan hefur hins vegar byggt upp mikinn varaforða þar sem landið er alfarið háð innfluttri olíu.

Orkuhagfræðingurinn Claudio Galimberti telur að verulega gæti dregið úr flugferðum þegar í maí eða júní ef ástandið breytist ekki. Hann sagði í viðtali við CNBC að þegar hafi verið frestað fjölda flugferða í Evrópu, þrátt fyrir að framkvæmdastjórn ESB hafi á sama tíma sagt engin skýr merki um eldsneytisskort enn sem komið er.

Samtök evrópskra flugvalla, ACI Europe, hafa þó varað við því að skortur gæti orðið innan þriggja vikna ef olíuskipum verður áfram meinað að sigla um Hormússund. Þá hefur framkvæmdastjóri Alþjóðaorkustofnunarinnar, Fatih Birol, tekið í sama streng og telur að skortur gæti skollið á í júní.

Um fimmtungur alls olíuflutnings heims fer um Hormússund á friðartímum, en sundið hefur verið nær lokað frá því Bandaríkin og Ísrael réðust til atlögu gegn Íran í lok febrúar.