Valgeir hjá Vaðlaheiðargöngum: Villandi vegskilti Vegagerðar varar við Víkurskarðsleið

Valgeir Bergmann hjá Vaðlaheiðargöngum vonar að Vegagerðin verði við viðleitni Vaðlaheiðarganga um að vegskiltið við Stórutjarnir sem varar við ófærð um Víkurskarð verði fært að vegamótum við afleggjara upp Víkurskarð, en í dag veldur það reglulega misskilningi hjá vegfarendum, sér í lagi ferðafólki sem ætlar sér að fara um veginn til Akureyrar, en á skiltinu sem er við þjóðveg 1 við Stórutjarnir stendur oft að sé lokað og hefur ferðafólk sumt tekið því sem svo að vegurinn til Akureyrar sé þá lokaður.

„Vegfarendur fá þarna villandi viðvörun, en vegskiltið segir til um lokun í Víkurskarði og ætti því að vera við Víkurskarðsleið. Við vonum að Vegagerðin verði við ósk okkar um að færa skiltið fyrir næsta vetur,“ segir Valgeir vongóður í samtali við Húsavík.com.