Helena Eydís: „Lítill skilningur á aðstæðum þeirra sem búa úti á landi“

Helena Eydís Ingólfsdóttir, forseti sveitarstjórnar Norðurþings, gagnrýnir breytingar á Loftbrú sem taka gildi um næstu áramót. Þá verður niðurgreiðslan föst, 7.000 krónur á fluglegg, í stað 40% afsláttar af fargjaldi. „Það er merkilegt að þegar allt hækkar og tekin er ákvörðun um að Loftbrú verði á næsta ári föst …

20 þúsund flugsæti til Norðurlands í vetur: „Verðum að taka undir og nýta þennan kraft“

Markaðsstofa Norðurlands stóð, í samstarfi við Íslandsstofu, fyrir vinnustofu um breska ferðamarkaðinn og markaðsstarf í Hofi á Akureyri í síðustu viku. Tilefnið er meðal annars beint vetrarflug easyJet frá London og Manchester til Akureyrar, en samkvæmt upplýsingum Markaðsstofu Norðurlands eru um 19.500 staðfest sæti í fluginu í vetur. Á …

Byggðarráð vill fund með fjármálaráðherra vegna söluáforma á flugstöðinni

Byggðarráð Norðurþings hefur falið sveitarstjóra að koma á fundi með fjármálaráðherra vegna áforma ríkisins um sölu á flugstöð Húsavíkurflugvallar í Aðaldal. Eins og Húsavík.com hefur greint frá er í fjárlagafrumvarpi ríkisstjórnarinnar fyrir árið 2027 að finna heimild til sölu á flugstöðinni. Áformin hafa þegar vakið hörð viðbrögð á svæðinu, …

„Með öllu óæskilegt að ráðstafa flugstöðvarbyggingunni með söluheimild“

Markþing, samtök fyrirtækja í ferðaþjónustu og verslun á Húsavík og nágrenni, mótmælir harðlega fyrirhugaðri heimild í fjárlagafrumvarpi ríkisstjórnarinnar til sölu á flugstöð Húsavíkurflugvallar í Aðaldal. Samtökin skora á stjórnvöld að falla frá áformunum og móta þess í stað skýra langtímasýn um framtíð flugvallarins. Í ályktun sem stjórn Markþings hefur …

Icelandair bætir við 15 aukaferðum til Akureyrar og Egilsstaða

Icelandair bætir við 15 aukaferðum, eða 30 flugleggjum, til Akureyrar og Egilsstaða frá og með fimmtudeginum 10. september. Aukaferðirnar verða í flugáætlun félagsins næstu tvær vikurnar. Ástæðan er nauðsynlegt viðhald á einni af DHC 8 Q400-flugvélum Icelandair, sem veldur tímabundnum breytingum á innanlandsflugi næstu vikurnar. „Þótt sætaframboð verði tímabundið …

Valgeir hjá Vaðlaheiðargöngum: Villandi vegskilti Vegagerðar varar við Víkurskarðsleið

Valgeir Bergmann hjá Vaðlaheiðargöngum vonar að Vegagerðin verði við viðleitni Vaðlaheiðarganga um að vegskiltið við Stórutjarnir sem varar við ófærð um Víkurskarð verði fært að vegamótum við afleggjara upp Víkurskarð, en í dag veldur það reglulega misskilningi hjá vegfarendum, sér í lagi ferðafólki sem ætlar sér að fara um …

Ný brú yfir Skjálfandafljót og grjótgarður á Húsavík á samgönguáætlun

Eyjólfur Ármannsson, innviðaráðherra, kynnti í dag samgönguáætlun til ársins 2040 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun. Þar kom fram að ný brú yfir Skjálfandafljót verði reist á tímabilinu 2026–2030 og að áformin séu að fullu fjármögnuð. Vegagerðin hefur áður áætlað að ný brú og nýr vegarkafli verði tilbúin haustið 2028. Aðaltenging …