Metfjöldi hefur skrifað undir kröfu um afnám kílómetragjalds

Undirskriftasöfnun á Ísland.is þar sem krafist er að kílómetragjald á ökutæki verði fellt niður í heild sinni hefur vakið gríðarlega athygli, en hún hófst fyrr í dag og hefur þegar þetta er skrifað hafa tæp 23 þúsund ritað nafn sitt undir áskorunina. Samkvæmt lauslegri athugurHúsavík.com er það þegar orðinn mesti fjöldi sem hefur safnast á fyrsta degi undirskriftasöfnunar gegnum Ísland.is, þó dagurinn sé ekki úti enn.

Í áskoruninni segir að núverandi kerfi sé ekki aðeins gallað í framkvæmd heldur einnig óréttlátt í grunninn. Þar er bent á að almenningur greiði nú þegar bifreiðagjöld. Þá segja aðstandendur söfnunarinnar einnig óásættanlegt að byggja tekjuöflun ríkisins á því að fyrirtæki á frjálsum markaði lækki verð eða hagnað.

Kílómetragjaldið tók gildi um áramótin og ber að greiða það mánaðarlega af öllum ökutækjum, óháð orkugjafa. Söfnunin stendur til 30. apríl.

Ljósmynd: Nicolas J Leclercq