Þorbjörg S. Gunnlaugsdóttir dómsmálaráðherra hefur skipað Höllu Bergþóru Björnsdóttur í embætti ríkislögreglustjóra. Hún tekur við embættinu mánudaginn 20. apríl.
Halla Bergþóra er Þingeyingur, fædd á Laxamýri sunnan Húsavíkur. Hún gegnir nú embætti lögreglustjóra á höfuðborgarsvæðinu, en hún tók við því starfi árið 2020.
Halla lauk embættisprófi í lögfræði frá Háskóla Íslands árið 1995 og hefur víðtæka reynslu úr stjórnun innan lögreglunnar. Samkvæmt tilkynningu dómsmálaráðuneytisins hefur hún nítján ára reynslu af stjórnun lögregluembætta og hefur síðustu sautján ár verið settur eða skipaður lögreglustjóri í þremur embættum, þar á meðal hjá lögreglunni á Norðurlandi eystra. Þá starfaði hún sem sýslumaður á Akranesi á árunum 2009 til 2014.
Í tilkynningu ráðuneytisins kemur fram að Halla Bergþóra hafi leitt umfangsmikil verkefni, reynst farsæll stjórnandi og stýrt stórum hópi starfsfólks. Hún var jafnframt formaður lögreglustjórafélagsins á þeim tíma þegar ný lögregluembætti voru stofnuð og tók þátt í mótun þeirra í samstarfi við ráðuneytið.
Embætti ríkislögreglustjóra var auglýst laust til umsóknar 3. desember síðastliðinn og bárust fjórar umsóknir. Auk Höllu Bergþóru sóttu um embættið þau Alda Hrönn Jóhannsdóttir, Birgir Jónasson og Grímur Hergeirsson.

