Ragnheiður nýr forseti Landssambands ungmennafélaga

Ragnheiður Geirsdóttir var kjörin nýr forseti Landssambands ungmennafélaga á sambandsþingi um síðastliðna helgi. Landssamband ungmennafélaga eru regnhlífarsamtök fyrir félagasamtök ungs fólks um allt Ísland og eru aðildarfélög 44 talsins, þar á meðal stúdentaráð HÍ, Samband íslenskra framhaldsskólanema, SAMFÉS, JCI á Íslandi og ungliðahreyfingar ýmissa stjórnmálaflokka. Í tilkynningu frá samtökunum …

„Þú getur tekið strákinn úr sveitinni en þú tekur aldrei sveitina úr stráknum“

Á morgun verður heimildarmyndin Voru allir hér? sýnd í Sambíóunum á Akureyri. Myndin segir 100 ára sögu Laugaskóla, en skólinn fagnaði aldarafmæli sínu í október síðast liðnum. Leikstjóri myndarinnar er Ottó Gunnarsson, kvikmyndagerðarmaður frá Efri-Hólum við Kópasker og fyrrverandi nemandi skólans. Ferill Ottós sem nemanda við Laugaskóla var um …

Tíundi hver farþegi til Akureyrar heimsækir einnig Austurland

Um tíundi hver farþegi sem nýtir sér beint millilandaflug til Akureyrar heimsækir einnig Austurland og er almenn ánægja meðal gesta með bæði svæðin. Þetta kemur fram í nýrri skýrslu Rannsóknarmiðstöðvar ferðamála, „Beint frá Akureyri“, sem byggir á landamærakönnun meðal erlendra ferðamanna veturinn 2024–25. Austurglugginn greinir frá. Fram kemur að …

Þórhallur gefur kost á sér í 1. sæti á Akureyri og vill prófkjör hjá Sjálfstæðisflokki

Þórhallur Jónsson, varabæjarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins á Akureyri, hefur ákveðið að gefa kost á sér í efsta sæti á lista flokksins fyrir bæjarstjórnarkosningarnar í vor. Jafnframt hyggst hann kæra til miðstjórnar flokksins þau vinnubrögð sem viðhöfð hafa verið við val á framboðslista og krefst þess að haldið verði prófkjör. Akureyri.net greindi …

Þingeyjarsveit: Fækkað um tvo í sveitarstjórn og fimm fulltrúar hætta

Við sveitarstjórnarkosningar þann 16. maí verður breyting á skipan sveitarstjórnar í Þingeyjarsveit, en Innviðaráðuneytið hefur samþykkt erindi sveitarfélagsins um að fækka kjörnum fulltrúum úr níu í sjö á næsta kjörtímabili. Fjölgun fulltrúa úr sjö í níu var veitt sem tímabundin undanþága í kjölfar sameiningar Skútustaðahrepps og Þingeyjarsveitar árið 2022. …

Nýr framtakssjóður með áherslu á landsbyggðina

Kaldbakur og KEA hafa gert samkomulag um stofnun nýs framtakssjóðs, Landvættir, sem verður starfræktur hjá AxUM Verðbréf. Sjóðurinn mun fjárfesta í innlendum nýsköpunar- og vaxtarfyrirtækjum, með sérstaka áherslu á starfsemi á landsbyggðinni. Í upphafi munu Kaldbakur og KEA eiga jafnan hlut í sjóðnum. Stefna Landvætta er langtímafjárfestingar, allt að …