Klassískar kvikmyndir tengja kynslóðirnar á Vestfjörðum

Kvikmyndir sem mótuðu heilu kynslóðirnar hafa fengið nýtt líf á hvíta tjaldinu á Ísafirði í vetur. Verkefnið Spólað til baka hefur í vetur verið að koma með klassískar kvikmyndir níunda og tíunda áratugarins aftur í bíó, þar sem eldri áhorfendur geta rifjað upp gömul kynni og yngri kynslóðir upplifað myndirnar í fyrsta sinn á stóra tjaldinu.

Hugmyndin að Spólað til baka kviknaði hjá Diego Ragnar Angemi síðasta haust þegar hann fór á sérstaka afmælissýningu á The Shining. Hann hafði séð myndina margoft áður, en upplifunin af því að sjá hana aftur í kvikmyndahúsi varð allt önnur. Rætt var við Diego á kvikmyndavefnum Fjalakettinum í gær.

„Ég hafði séð myndina áður, líklega oftar en ráðlegt er, en að sjá þessa rúmlega 40 ára gömlu mynd aftur á stóra tjaldinu var mögulega besta áhorfið hingað til,“ segir Diego.

Það vakti ekki síður athygli hans hversu fjölbreyttur áhorfendahópurinn var. Þar sátu saman reyndir kvikmyndaunnendur sem þekktu myndina vel og ungt fólk sem var að öllum líkindum að sjá hana í fyrsta skipti.

„Þá fór ég að hugsa um hvernig það væri fyrir yngri kynslóðina að sjá þessi meistaraverk sem mótuðu kynslóð foreldra þeirra.“

Dúi og Gróa tóku hugmyndinni opnum örmum

Úr varð Spólað til baka, þar sem ein klassísk kvikmynd er sýnd í Ísafjarðarbíói eitt þriðjudagskvöld í mánuði frá maí og fram í desember. Diego segir að hugmyndinni hafi strax verið vel tekið af Dúi og Gróu, sem hafa rekið Ísafjarðarbíó um áratugaskeið.

„Þau tóku hugmyndinni opnum örmum, elskuðu hana og leyfðu mér í raun bara að hlaupa með hana,“ segir Diego.

Verkefnið hefur jafnframt fengið styrki sem meðal annars standa undir hluta kostnaðar við sýningarleyfi.

Fyrsta sýningin fór fram í maí þegar íslenska költmyndin Sódóma Reykjavík frá 1992 var sýnd. Nær fullt var út úr dyrum og segir Diego að þar hafi einmitt mátt sjá þá kynslóðablöndu sem verkefninu er ætlað að skapa.

„Þarna voru bæði þau sem sáu myndina á sínum tíma og þau sem loksins skildu menningarlegu tilvísunina í Dúfnahóla 10,“ segir hann.

Síðan hafa meðal annars La Haine, Run Lola Run og sænska unglingamyndin Fucking Åmål verið sýndar. Næst er komið að pólsku vísindaskáldsögugamanmyndinni Seksmisja frá 1984, sem verður sýnd þriðjudaginn 29. september klukkan 20.

Sódóma Reykjavík var fyrsta kvikmynd Óskars Jónassonar, en hún var sýnd í Ísafjarðarbíói í seríunni Spólað til baka fyrr á árinu.

Ungt fólk fær frítt í bíó

Sérstök áhersla er lögð á að yngri áhorfendur fái tækifæri til að kynnast myndunum. Öll sem fædd eru árið 2000 eða síðar fá ókeypis aðgang að sýningunum.

Diego segist hafa komið skemmtilega á óvart hversu mikill kvikmyndaáhugi sé meðal ungs fólks á Ísafirði.

„Ég varð satt að segja mjög hissa á því hversu margir kvikmyndanördar eru meðal unga fólksins hér í bænum,“ segir hann. „Margir sem ég hef talað við hafa heyrt um sumar eða flestar myndirnar á dagskránni en aldrei fengið tækifæri til að sjá þær. Það er því raunverulegur áhugi á þessum klassísku myndum.“

Ókeypis aðgangurinn geri það jafnframt auðveldara fyrir ungt fólk að mæta með vinum og gera bíókvöld úr sýningunni.

„Nokkrir úr þessum hópi hafa þegar spurt mig hvort það verði önnur sería á næsta ári. Ég tek því sem nokkuð góðu merki um að fólk kunni að meta verkefnið.“

Fucking Åmål, fyrsta kvikmynd sænska leikstjórans Lukas Moodysson, var sýnd í byrjun september.

Trainspotting, Totoro og Cinema Paradiso fram undan

Hin Pólska Seksmisja var sýnd í síðustu viku, en hlé verður á dagskránni næstu daga vegna kvikmyndahátíðarinnar PIFF. Næsta sýning fer svo fram þann 3. nóvember, en þá verður Trainspotting frá 1996 á dagskrá, 24. nóvember verður japanska teiknimyndaklassíkin My Neighbor Totoro frá 1988 sýnd og lokahnykkurinn verður hin ítalska Nuovo Cinema Paradiso, einnig frá 1988, þann 15. desember. Allar sýningarnar hefjast klukkan 20.

Hugmyndin að baki Spólað til baka er þó ekki aðeins að rifja upp gamlar kvikmyndir heldur að skapa sameiginlega upplifun kynslóða. Eins og segir á vef verkefnisins geta myndirnar sem ein kynslóð ólst upp með orðið að nýrri upplifun fyrir þá næstu.

Þannig getur sá sem man eftir myndinni frá fyrstu sýningu setið við hliðina á einhverjum sem sér hana í fyrsta sinn.

Dagskrá og nánari upplýsingar um Spólað til baka

Nuovo Cinema Paradiso eftir Giuseppe Tornatore verður síðasta myndin í seríunni á þessu ári, þann 15. desember.