159 örnefni á Vaðli skráð í nýrri bók

Feðginin Hákon Jónsson og Sonja D. Hákonardóttir hafa gefið út veglega bók með örnefnaskrá fyrir jörðina Vaðal á Barðaströnd, að því er greint var frá á fréttavefnum bb.is.

Í bókinni eru alls 159 örnefni skráð og merkt inn á ljósmyndir af Vaðli. Hákon segir í formála að bókin sé tileinkuð ömmu hans, Elínu Einarsdóttur, sem bjó á Vaðli í tæp 70 ár og kunni öll örnefni jarðarinnar. Flest örnefnanna eru skráð eftir minni Hákonar, en einnig var stuðst við eldri örnefnaskrá.

Myndirnar í bókinni tók Rán Bjargardóttir í september 2024. Bókin var prentuð í Bretlandi og er til sölu hjá Hákoni og Sonju á 14 þúsund krónur.