Starlink í skólabíl á Patreksfirði vegna símasambandsleysis

Starlink-netbúnaður hefur verið settur í skólabíl á Patreksfirði til að tryggja fjarskiptasamband á löngum vegarköflum þar sem símasamband er lítið eða ekkert. Greint er frá þessu í ítarlegri frétt á Vísi.is í dag. Börn sem sækja skóla frá Barðaströnd ferðast allt að 110 kílómetra daglega og eru stóran hluta leiðarinnar sambandslaus.

Foreldrar hafa lýst yfir áhyggjum af öryggi barna sinna og sveitarfélagið hefur ítrekað bent á vandann án þess að úrbætur hafi fengist. Þá hefur lokun 2G og 3G senda valdið því að ástandið versnaði enn frekar.

Sjá nánar á Visir.is