Oddvitaumræður Morgunblaðsins fyrir sveitarstjórnarkosningarnar í Norðurþingi fóru fram á Húsavík í gær og verður þátturinn aðgengilegur á mbl.is síðar í dag.
Blaðamaður Húsavík.com hitti Stefán Einar Stefánsson, blaðamann Morgunblaðsins, sem stýrði umræðunum.
„Það getur verið áskorun að taka viðtal við sex manns í einu eins og þú þekkir. Það er ánægjulegt að hér sé úrval af fólki,“ sagði Stefán Einar eftir fundinn.
Hann segir að umræðurnar hafi gefið ákveðna mynd af stöðunni í sveitarfélaginu og þeim málum sem brenna á fólki.
„Það er greinilega ennþá kergja vegna sameiningarinnar fyrir 20 árum og Óskalistinn kemur þar inn í ákveðið tóm. Mér fannst frambjóðendur standa sig vel, auðvitað misreynd í pólitík. Sumir voru varir um sig gagnvart mér til að byrja með, enda búið að draga upp þá mynd af mér að ég sé eins og minkur og stökkvi bara á hálsinn á fólki. Ég fékk að heyra að ég væri alls ekki eins slæmur og ég virðist úr fjarlægð,“ sagði Stefán kíminn.
Hann gat ekki stillt sig um að skjóta létt á landsmálin í leiðinni: „Auðvitað þorði Kristrún Frostadóttir ekki að mæta til mín í Spursmál en þetta fólk er með góðan málstað og þurfti ekkert að óttast,“ sagði hann og hló.
Stefán segir að reynslan í sveitarstjórnarmálum hafi sitt að segja þegar kemur að umræðunni.
„Það sést auðvitað hver hafa setið lengur í sveitarstjórn. Það kemur dýpri skilningur á gangverki sveitarfélagsins með tímanum, svona oftast.“
Að hans mati eru nokkur stór mál sem kalla á skýr svör í kosningabaráttunni.
„Það eru ýmsar áleitnar spurningar sem þarf að ræða. Ég kynnti mér vel skólamálið á Raufarhöfn. Þetta er hörð lífsbarátta og ef sértæki byggðakvótinn verður sleginn af hefur maður á tilfinningunni að þetta sé bara búið fyrir Raufarhöfn.“
Sveitarstjórnarkosningar fara fram 16. maí næstkomandi og er kosningabaráttan nú farin á fullt í Norðurþingi.

