Mun færri útstrikanir voru á kjörseðlum í sveitarstjórnarkosningunum í Norðurþingi um helgina en í kosningunum árið 2022. Samtals voru 20 útstrikanir skráðar nú, en þær voru 54 fyrir fjórum árum.
Flestar útstrikanir í ár voru hjá D-lista Sjálfstæðisflokksins, alls 10 talsins. Þá voru fjórar útstrikanir hjá Óskalistanum og þrjár hjá M-lista Samfélagsins. Ein útstrikun var hjá B-lista Framsóknarflokksins, ein hjá S-lista Samfylkingarinnar og ein hjá V-lista Velferðar.
Í kosningunum árið 2022 voru útstrikanir hins vegar talsvert fleiri hjá flestum framboðum. Auðum kjörseðlum fækkaði einnig milli kosninga. Í ár voru þeir 41 eða 2,4% greiddra atkvæða, en árið 2022 voru auðir seðlar 52 eða 3,2% greiddra atkvæða.

